A llir sem heimsótt hafa Þýskaland síðustu áratugina vita sem er að heimamenn eru vægast sagt lítið fyrir að rifja upp heldur blóði drifna fortíð landsins. Þeir skammast sín ennþá fyrir hroðaverk nasista. Sem er ein ástæða þess að lítið heyrist af einum allra forvitnilegasta túrnum um Berlín.

Eitt fyrirtæki sem reynir ekki að fela myrka sögu Berlínar.
Þú finnur ofgnótt af ýmsu forvitnilegu um höfuðborg Þýskalands í þeim ferðamannamiðstöðvum sem reknar eru í Berlín og eru minnst fjórar talsins eftir því sem við komumst næst. En næst þegar þú rekur inn nefið í þær miðstöðvar taktu þá eftir að 99 prósent af því sem mælt er með fyrir erlenda ferðamenn eru oft gerilsneyddir staðir frá seinni hluta síðustu aldar. Checkpoint Charlie kemur upp í hugann jafnvel þó skúr sá sem nú prýðir þann stað eigi lítið skylt við hið raunverulega Checkpoint Charlie fortíðarinnar. Svo ekkert sé nú talað um þá molnuðu steypuklumpa sem enn standa af frægum Berlínarmúrnum.
Að frátöldu Gyðingasafninu, Jüdisches Museum, og Minningartorginu, Das Holocaust Manhmal, og tveimur til þremur lítt þekktum stöðum öðrum, er næsta ekkert að finna í Berlín um mestu söguskeið þeirrar borgar í fyrri heimsstyrjöldinni, yfir Weimar-tímabilið og svo auðvitað þegar Hitler og nasistar náðu völdum og vildu heimsyfirráð eða dauða.
Hvergi nokkurs staðar í borginni er auðveldlega hægt að finna upplýsingar um þessa óaldartíma í lífi Berlínar og þýsku þjóðarinnar nema beinlínis fletta upp sögulegum gögnum á netinu. Ef marka má upplýsingamiðstöðvar þar í borg gerðist ekkert markvert í Berlín þangað til Rússar og Bandamenn skiptu borginni í tvennt árið 1945.
Tími læknar sár
Góðu heilli eru sumir Þjóðverjar að taka barnaskref í átt að því að viðurkenna og kynna sögu sína án þess að skammast sín eða draga undan það sem ekki þykir boðlegt fyrir viðkvæma erlenda ferðamenn. Sagan er nefninlega sagan hvort sem fólki líkar vel eða illa.
Ein samtök sem vilja gjarnan leggja meiri áherslu á blóðuga fortíð Berlínar er Berliner Unterwelden. Það félagasamtök sem vilja fyrir alla muni ekki fela eitt né neitt og sem partur af því prógrammi bjóða gestum sínum upp á allsérstaka túra um undirheima Berlínar. Ekki undirheima í merkingunni að kynna ferðamenn fyrir vændis-, dópsölum eða mafíósum heldur bókstaflega undirheima borgarinnar. Með öðrum orðum það sem finnst UNDIR borginni og tengist undantekningarlítið Seinni heimsstyrjöldinni.
Það er nefninlega svo að þó borgaryfirvöld séu lítt hrifin þá eru sífellt að koma í ljós forvitnilegir hlutir undir yfirborðinu með ýmis konar raski vegna framkvæmda hér og þar. Það á ekki að koma á óvart. Það var jú prógrammið á sínum tíma að sprengja upp eða valta eða grafa yfir allt það sem minnti á nasisma og Hitlerstímann í Berlín.
Sem auðvitað þýðir að undir Berlín nútímans er að finna töluvert af göngum, byggingum og minnisvörðum um það stríð sem lék Evrópu hvað verst fyrir 80 til 90 árum síðan eða svo. Og allt slíkt vill félagsskapurinn að baki Berliner Unterwelden endilega sýna þér.
Förum ekki mörgum orðum um það sem fyrirtækið býður upp á enda af ýmsu að taka og velflest vel undir jörðu. Við mælum þó hiklaust með túr því ekkert er hollara andanum og sálinni en taka hlutum eins og þeir eru og voru. Við lærum ekkert af sótthreinsaðri sögu.




