Flugmenn glænýrra Boeing Max véla Lion Air og Ethiopian Air, sem brotlentu með hörmulegum afleiðingum á síðasta ári, HÖFÐU AÐEINS TÍU SEKÚNDUR, til að átta sig á og gera ráðstafanir vegna nýs búnaðar í vélunum. Búnaðar sem Boeing sagði engum frá.

Það reyndist allt rétt sem fram hefur komið um Boeing Max vélarnar. Þær hannaðar og smíðaðar með gróða en ekki öryggi í huga. Mynd Boeing

Saga Boeing Max er farin að nálgast viðbjóðslegustu hryllingsmyndir. Nóg hefur lekið af efni til fjölmiðla síðan tvær glænýjar Max-rellur brotlentu sísona á síðasta ári. Nú hefur komið í ljós að allar þær fréttir voru barasta kórréttar.

Sú bandaríska þingnefnd sem sér um flug og ferðamál hefur loks sent frá sér bráðabrigðaskýrslu vegna Max-véla Boeing. Þar kemur kristaltært fram að Boeing svindlaði og svínaði á öllum mögulegum sviðum til að rellan kostaði sem allra minnst. Það líka á kostnað öryggis.

Helstu niðurstöður nefndarinnar þessar:

A) Yfirmenn Boeing settu stífa pressu á starfsfólkið til að ná settu marki og öryggi var eitthvað ofan á brauð.

B) Stjórnendur Boeing gáfu sér ýmsar forsendur við hönnun og smíði Max-véla sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum.

C) Boeing leyndi og faldi mikilvægar upplýsingar fyrir eftirlitsaðilum.

D) Hagsmunaárekstrar milli Boeing og eftirlitsaðila. Boeing gerði lítið úr áhyggjum stöku undirstjórnenda sem vildu koma alvarlegum athugasemdum á framfæri og gróf þær athugasemdir innanhúss. Eftirlitsaðilar, sem oft á tíðum voru á launum hjá Boeing þrátt fyrir að vera opinberir eftirlitsaðilar létu gott heita.

Nefndin komst að því að Boeing vissi upp á hár að flugmenn Max-véla hefðu aðeins TÍU SEKÚNDUR til að bregðast við viðvörunum frá nýju MCAS-kerfi vélanna. Þrátt fyrir það taldi Boeing óþarfa að láta flugmenn vita af MCAS sem er kerfi sem bregst sjálfkrafa við ofrisi og tekur völdin af flugmönnum.

Nefndin komst að því að Boeing lét hjá líða að láta flugfélög eða flugmenn vita af glænýju MCAS-kerfinu sem ekki var til staðar í eldri Boeing-vélum. Fyrirtækið lét líka hjá líða að láta vita að hver Max-vél væri aðeins með einn tölvustýrðan nema til að gangsetja MCAS-kerfið. Ef sá nemi var gallaður eða bilaði væri voðinn vís en Boeing ekkert að auglýsa það.

Kannski það ömurlegasta í skýrslu bandarísku nefndarinnar er sú staðreynd að eftir fyrsta flugslysið í Indónesíu framkvæmdi Flugeftirlitsstofnun Bandaríkjanna nýja úttekt á flughæfi Boeing-Max og komst að því að ef gallarnir í vélunum yrðu ekki lagfærðir mætti gera ráð fyrir að FIMMTÁN Boeing-Max vélar hröpuðu til jarðar á næstu árum og áratugum. Flugöryggisstofnunin gerði akkurat ekkert til að bregðast við þeim upplýsingum.

Upplýsingarnar vatn á myllu þeirra þúsunda sem áttu vini eða ættingja í þeim tveimur flugslysum sem kostuðu tæplega 400 einstaklinga lífið á síðasta ári. Vonandi nýtist það þeim til að sækja Boeing til saka fyrir fjöldamorð. Fjöldamorð sem fyrirtækið hefði getað komið í veg fyrir.