Tíðindi

Dýrustu borgirnar 2009

  24/08/2009maí 17th, 2014No Comments

Glæný skýrsla leiðir í ljós að það er Osló í Noregi sem er dýrasta borg heims árið 2009. Er sú ágæta borg orðin dýrari en fyrir ári áður en efnahagslægðin reið yfir heiminn.

Er það greiningardeild svissneska bankans UBS sem gefið hefur út skýrsluna en bankinn hefur gert slíka könnun árlega um hríð. Á eftir Osló koma borgirnar Zurich, Kaupmannahöfn, Genf og Tókíó í þessari röð. Búkarest í Rúmeníu er ódýrasta borg Evrópu samkvæmt könnuninni.

Skýrsla USB í heild sinni hér.