M örgum finnst túr til New York í Bandaríkjunum ekki spennandi nema hoppa um borð í eina af fjölmörgum ferjum sem flakka með túrista um helstu staði þessarar ágætu borgar. En það kostar skildinginn og það er til betri og ódýrari leið 🙂

Flottasta útsýnið yfir skýjakljúfa Manhattan fæst ekki endilega með dýrum túristatúrum.
Eins og við er að búast í landi þar sem samkeppni er í öllu undir sólinni telur fjöldi þeirra aðila sem reyna að freista ferðamanna til að sigla um New York í tugþúsundum. Allir bjóða auðvitað mest og best en eðli máls samkvæmt miðast verðlag við erlenda ferðamenn með peninga til að eyða.
Til dæmis aðilar eins og CitySightseeing Ferry sem sigla með ókunnuga milli tveggja áfangastaða á Manhattan-eyju fyrir svo mikið sem fjögur þúsund krónur per haus. Nú, eða með Circle Lights Sightseeing sem býður siglingar um Manhattan þegar kvölda tekur fyrir svo lítið sem 4.400 krónur per haus. Og svo framvegis og svo framvegis.
Snilldin er þó að þú getur mikið til fengið brilljant yfirsýn yfir Manhattan og nágrenni fyrir heilar 450 krónur ef þú bara veist hvar á að leita 🙂
Slíkt finnur þú til dæmis með því að gúggla East River Ferry Cruise. Ólíkt túristasiglingunum er þessi dallur hluti af samgöngukerfi borgarinnar sem skýrir lágt verðið. Og eins og sjá má á meðfylgjandi korti er ferjan atarna að stoppa á sérdeilis heppilegum stöðum ef hugmyndin er að sjá Manhattan í heild sinni.
Ekki nóg með það. Ferjan flakkar milli Manhattan annars vegar og Brooklyn hins vegar. Fyrir þá sem ekki eru mikið að spá í hvar hlutirnir eru að gerast í New York þá er Brooklyn fremst jafningja. Að kvöldlagi er jafnvel hægt að heimsækja Ríkisstjóraeyju, Governors Island, án þess að kosta aukalegu til.
Best af öllu er prísinn. 340 íslenskar krónur fyrir hreint ágætan túr sem lifir í minningunni 🙂




