Við liggur að það sé hreint og beint stærðfræðilögmál að Íslendingar þurfi sýknt og heilagt að borga heilan helling meira en nágrannar þau skipti sem okkur langar að flýja erlendis og njóta stunda á fjarlægjum sólarströndum. Fjórar stikkprufur ritstjórnar Fararheill sýna að landinn pungar út miklu hærri upphæðum í sams konar ferðir en almenningur í Bretlandi, Noregi og í Danmörku.
Hvers vegna njóta Íslendingar aldrei sömu kjara og aðrir í löndum í kringum okkur? Einu virðist gilda hvort hér sé bullandi gerviuppgangur árin fyrir hrunið eða allt í lamasessi árin eftir hrunið. Við þurfum alltaf að borga mun hærra fyrir sömu vöru og aðrir.
Ritstjórn tók fjórar pakkaferðir frá fjórum íslenskum ferðaskrifstofum og bar saman verð við sams konar eða svipaðar pakkaferðir frá Bretlandi, Noregi og Danmörku. Líkt og komið hefur í ljós í fyrri skipti sem Fararheill hefur borið slíkt saman er himinn og haf milli þess sem við greiðum og allir aðrir.
Vitaskuld eru stöku ástæður fyrir hærra verði. Krónan er ónýt og hún kostar okkur og vissulega er flugtími lengri héðan en frá Englandi eða Kaupmannahöfn. En þetta útskýrir ekki þann mikla mismun sem tíðkast og sami verðmunur var á ferðakostnaði þegar krónan var í Hollywood hæðum árið 2005.
DÆMI A:
Fyrsta dæmið er tilboð Express ferða til Costa Brava strandarinnar í Katalóníu en þangað er auglýst sérstaklega á vef Iceland Express ferð frá 8. júní til 15. júní miðað við tvo fullorðna og tvö börn á Trimar Apartments, þriggja stjörnu, fyrir 78.900 krónur á mann án fæðis. Leit á vef Express ferða leiðir í ljós að það verð stenst ekki og er í raun 91.333 krónur á mann án fæðis. Samtals kostnaður við vikudvölina fyrir tvo fullorðna og tvö börn er því 365.330 krónur.
Easyjet flugfélagið rekur ferðaskrifstofu og hjá easyJet Holidays finnast fjölskylduferðir frá Luton til Costa Brava. Þar er gist í þriggja stjörnu HTop Olympic hótelinu með hálfu fæði 8. til 15. júní fyrir fjóra saman á 150.360 krónur. Að vísu er þar inni ekki aukakostnaður vegna farangurs en fimm til tíu þúsund krónur til eða frá skipta litlu máli í samanburðinum.
Mismunur á verði: 214.970 krónur
DÆMI B:
Ferðaskrifstofan Heimsferðir býður vikuferðir til Costa del Sol þetta sumarið. Ein slík er 26. júní til 3. júlí til Torremolinos á þriggja stjörnu Aquamarina íbúðahótelinu. Par eða hjón þurfa fyrir vikudvölina án fæðis að greiða samtals 210.000 krónur.
Flugfélagið Norwegian býður pakkaferðir frá Osló til Costa del Sol. Ein þeirra er ferð til Torrox fyrir tvo 26. júní til 3. júlí á þriggja stjörnu Santa Rosa hótelinu. Kostnaður við ferðina fyrir tvo samtals 119.359 krónur auk sjö þúsund króna fyrir tvær ferðatöskur.
Mismunur á verði: 83.641 króna.
DÆMI C:
Einn aðaláfangastaður ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn er Roquetas de Mar í grennd við Almeria. Ferð þangað fyrir tvo fullorðna og tvö börn 10. – 17. júlí á þriggja stjörnu Pierre Vacances hótelinu kostar samtals 404.613 krónur.
Á vefnum Lastminute.com finnst flug frá London og gisting í Roquetas de Mar á þriggja stjörnu Mar y Golf hótelinu 10. til 17. júlí fyrir tvo fullorðna og tvö börn fyrir samtals 204.072 krónur auk farangurskostnaðar. Fjórar töskur kosta tíu þúsund krónur og samtala því 214. 072 alls.
Mismunur á verði: 190.541 króna.
DÆMI D:
Hjá Vitaferðum er komist beint til Albufeira í Portúgal í sumar. Einn pakkinn í boði hjá Vita er gisting í þriggja stjörnu Alfagar hótelinu í Albufeira. Sá pakki fyrir tvo fullorðna og tvö börn kostar 542.600 krónur.
Detti einhverjum í hug að ferðast frá Kaupmannahöfn til Albufeira með Bravo Tours og panti sá hinn sami gistingu í Alfagar hótelinu fyrir tvo fullorðna og tvö börn í viku en þremur dögum fyrr en Íslendingarnir koma með Vitaferðum þarf hinn sami að greiða fyrir það samtals 471.833 krónur.
Mismunur alls 70.767 krónur.
* Úttekt gerð milli 21 og 22 þann 29. apríl 2012. Byggt á miðjugengi krónu gagnvart pundi og norskri og danskri krónu á alþjóðamarkaði.







