
Þetta gæti vel verið á Santorini. En er ekki.
Ók, það kannski fulldjúpt í ár tekið. Og þó.
Sidi Bou Said er strandbær í um 20 mínútna fjarlægð til norðurs frá höfuðborginni Túnis í Túnisíu og aðeins tíu mínútna fjarlægð frá helsta alþjóðaflugvelli landsins.
Bærinn stendur hátt yfir fegurstu strönd með útsýni langt, langt út á haf þegar best verður á kosið. Stór hluti bæjarins státar af húsum með þessu fræga kúpta þaki eins og finnst víða á grísku eyjunum og það sem meira er þá eru hús hér eingöngu hvít eða blá eða hvorutveggja. Ergo: hin túnisíska Santorini 🙂

Rólegt og gott að vera jafnvel yfir háannatímann.
Það er fyrir litaúrvalið sem bærinn er þekktur meðal heimamanna sem Ville Bleue eða Blái bærinn og skarpir litirnir aldeilis kjörið fyrir ljósmyndara og Instagrammara.
Ekki síður stórkostlegur sólarstaður enda við Miðjarðarhafið og hér er sól og blíða nánast allan veturinn líka. Þá er enginn mínus heldur að dvöl hér, matur, drykkur og afþreying kostar heilt yfir 60% minna en á þekktari ströndum Evrópumegin hinu við sama haf.
Ekki slæmur díll ef þú spyrð okkur en hafa bak eyra að hér er franska meginmálið en ekki enska sem getur pirrað einhverja en samkvæmt okkar reynslu skilst gamla lélega menntaskólafranskan merkilega vel.