Í slendingar eru engir aukvisar þegar kemur að ferðum til Algarve í Portúgal. Ef Kanaríeyjar, Benídorm og Mallorca eru frátaldar hefur Algarve svæðið verið það vinsælasta hjá íslenskum sóldýrkendum þau skipti sem þangað hefur verið boðið upp á ferðir.
Ekki síst á það við um unga fólkið sem sækir í annað og meira en bara sólina. Það vill fjör og stemmningu og því hefur Fararheill tekið saman lista yfir skemmtilegustu barina eða klúbbana á þessu fjörmikla svæði.
Ritstjórn Fararheill.is getur persónulega vottað að hver og einn þessara staða veldur engum vonbrigðum ef hrista á líkamann og gefa sig gleðinni á vald.
Kiss (Albufeira) Þekktasti skemmtistaður Algarve og ekki fyrir ekki neitt. Þrjár hæðir af dúndrandi músík fyrir hvern og einn, þemakvöld algeng og yfirleitt skemmtileg og ýmislegt sem eigendur og starfsmenn taka upp á að gera af minnsta tilefni. Þetta er þó eingöngu staður næturhrafnanna því stuðið byrjar í raun ekki fyrr en uppúr klukkan þrjú og stemmningin nær hámarki þegar birta fer af degi. Eini gallinn sá að stöku sinnum verður mannfjöldinn of mikill.
Stevie Ray´s (Lagos) Ekki alveg miðsvæðis enda Lagos töluvert frá stærstu ferðamannabæjum en þess virði að kíkja og njóta. Góður bar á venjulegum degi en á föstudags- og laugardagskvöldum dunar djass eða blús sem aldrei fyrr og böndin sem spila yfirleitt í betri kantinum miðað við sólardvalarstað. Lokað sunnudag og mánudag.http://www.stevie-rays.com/
Albertus Bar (Albufeira) Fyrsta flokks þjónusta og góður matur en fyrst og fremst staður þeirra sem elska karókí. Frí skot venja fremur en undantekning og ágætir plötusnúðar reka reglulega inn nefið.
Kadoc (Vilamoura) Annar stór næturklúbbur þar sem enginn skortur er á tryllandi músík og gólfum til að dansa á. Erlendir plötusnúðar algengir og meirihluti þeirra sem prófa einu sinni fara þangað aftur. Þemukvöld algeng. http://www.kadoc.pt/
Libertos (Albufeira) Nýjasti og þessa dagana sennilega vinsælasti næturkúbbur svæðisins. Fjölsóttur af frægu portúgölsku fólki og aðstaðan er ekki til að skammast sín fyrir. Risaskjáir, sundlaug og pálmatré og alveg stærsta tegund af hátölurum sem blasta allt upp úr miðnætti.
Katedral (Praia de Rocha) Brennheitur næturklúbbur með allra nýjustu tónlistina hverju sinni. Er þó minni en þeir stærstu og því oftar en ekki mannþröng þar inni.
Warung (Sagres) Nettur bar á vinsælustu „óþekktu“ strönd Portúgal. Frítt net, góður fjölbreyttur matur og þægileg lifandi tónlist.
Sete Café (Vilamoura) Einn frægasti staðurinn í Algarve og það ekki lítið afrek með tilliti til fjölda slíkra staða. Staðsettur við smábátahöfnina á besta stað og maturinn klikkar aldrei. Vinsældirnar má þó að mestu rekja til þess að hann er fjölsóttur af stjörnum kvikmynda, íþrótta og tónlistar og er að helmingi í eigu portúgalska knattspyrnumannsins Luis Figo. http://www.setecafe.com/
Hafa skal í huga að í velflestum næturklúbbum Portúgal fá gestir afhentan lítinn miða við innganginn sem ber að framvísa á börunum innandyra í hvert sinn sem drykkir eru pantaðir. Er þá fjöldi þeirra ritaður á umræddan miða sem svo er greiddur við brottför. Undir engum kringumstæðum má týna miðanum því þá þarf að greiða ákveðið fast gjald áður en staðurinn er yfirgefinn og sú upphæð getur rokkað frá 10 til 25 þúsund krónum. Er þetta ansi góður díll fyrir næturklúbbaeigendurna. Ekki aðeins koma þeir alfarið í veg fyrir þjófnað starfsfólks heldur fá margir gestir á tilfinninguna að drykkir séu ókeypis, sérstaklega þegar nægt magn af vínanda hefur verið innbyrt og eyða því mun meira en ella.





