Þ egar Kaninn bítur eitthvað í sig eru hlutirnir fljótir að gerast. Gott dæmi um það er New York en á aðeins tæpum tíu árum hefur sérstökum hjólastígum þar fjölgað um 80 prósent og hjólareiðamönnum nú gert svo hátt undir höfði víða að það gæti mjög líklega verið allra fljótlegasta leiðin til að skoða borgina.

Svona stígar voru vandfundir í New York fyrir aðeins nokkrum árum. Mynd James Schwartz

Svona stígar voru vandfundir í New York fyrir aðeins nokkrum árum. Mynd James Schwartz

Algjör sprengja hefur orðið í gerð hjólreiðastíga í borginni á skömmum tíma en um aldamótin mátti sá hjólareiðamaður teljast heppinn sem fann slíkan stíg yfir höfuð. Oftast nær þurfti hjólreiðafólk að þvælast í umferðinni samhliða bifreiðum með tilheyrandi hættum.

Ekki lengur. Nú má finna slíka stíga í velflestum hverfum borgarinnar og ekki síst á Manhattan sem er gjarnan sá hluti sem flestir ferðamenn halda sig í eða nálægt.

Það þýðir að þar sem umferð er jafnan gríðarleg í borginni og umferðarteppur jafn algengar og blaðrið í Vigdísi Hauksdóttur er það stór spurning hvort hjól sé ekki bara orðið vænlegasti fararmátinn ætli fólk að skoða sem mest á sem skemmstum tíma. Fyrir utan frelsið svo ekki sé minnst á líkamsræktina.

Hjól er víða hægt að leigja í New York. Borgin rekur slíka þjónustu í samvinnu við Citibank og þau ágæt til brúksins. Fyrir aðeins hærri upphæðir má líka leigja dýrari og betri hjól á allnokkrum stöðum sem er betri hugmynd ef fólk vill geta sest niður um kvöldið án þess að verkja í afturendann. Staðir eins og Blazing Saddles sem ritstjórn Fararheill hefur eðalgóða reynslu af.