H in fallega og vinsæla borg Dubrovnik í Króatíu stendur í brattri fjallshlíð. Sem þýðir stiga, tröppur, vesen og mæði fyrir okkur öll sem erum ekki starfsmaður mánaðarins í næstu crossfit-stöð.

Víða í hlíðum Dubrovnik gefst færi á að láta asna ferja þig milli staða. Það er ekkert annað en dýraníð.

Jú, auðvitað er hægt að skoða dásemdir þessarar miðaldaborgar án þess að blása úr nös. Ferðaþjónustuaðilar hér um slóðir vita sem er að annar hver gestur er annaðhvort feitur og lúinn og þolir ekki þvæling mikið eða 87 ára og þolir ekki þvæling mikið. Þess vegna er boðið upp á bílskutl milli helstu staða og það jafnvel þó aðeins 100 metrar séu á milli mestu gersema borgarinnar.

Gott og blessað með það. Sum okkar eru ekki að ferðast langar og dýrar leiðir erlendis til að láta hjartað vinna fyrir sínu.

Minna gott og blessað að brúka þá fjölmörgu asna sem framsæknir ota fram við hverja brekku í borginni. Alls 30 „ferðaþjónustuaðilar” hér bjóða fólki að skottast um dásemdir borgarinnar á asna og það gjarnan á sanngjörnu verði líka svona við fyrstu sýn.

Margir grípa þá gæs fegins hendi en þá gleymist algjörlega að Guð almáttugur setti asna ekki á jörð til að ferja feitalinga eða gamlingja upp brekkur í 30 til 40 gráðu hita. Allavega ekkert í biblíunni um neinar slíkar kvaðir.

Raunin sú, samkvæmt viðtölum okkar við asnahaldara í Dubrovnik, að hvert dýr er aðeins nothæft eitt einasta sumar. Það helgast líklega af því að þó asnarnir þoli vel að skoppast með erlendinga um hæðir Dubrovnik þá þola þeir það ekki tíu sinnum á dag, sjö daga vikunnar, fimm mánuði á ári.

Með öðrum orðum; dýravernd er ekki hátt skrifuð í Króatíu og asnarnir gjalda þess duglega. Þeim oft slátrað eftir eitt sumar því þeir eru svo framlágir eftir vertíðina.

Slepptu asnaskap í Dubrovnik og skammaðu þetta lið sem reynir að græða seðla á ferðamönnum með hörmulegri meðferð á dýrum.