E f þú heldur að þú vitir hvað langar raðir af fólki merkir þá þarftu að hugsa upp á nýtt. Næturlöng bið eftir ódýrum flatskjá í Elko eða nýjasta snjallsímanum er bara augnabliks bið ef þú ætlar þér að ferðast um Kína um kínversku áramótin.

Nett röð á aðallestarstöð Beijing í Kína rétt fyrir þarlent nýár.
Það er sannarlega martröð að eyða hálfum degi af lífinu eða jafnvel heilum að bíða eftir einhverri þjónustu víðast hvar í vestrænum heimi. Það er hundrað prósent ávísun á símtal á þjónustuverið þar sem þú mokar úr skálum reiðinnar. Jafnvel þó að flotti flatskjárinn sé á 80 prósent afslætti eða þú sért fyrst/-ur af negla nýjastu týpuna af flottasta snjallsímanum er biðin sú hérlendis djók út í eitt ef þér dettur í hug að þvælast um Kína yfir þarlend áramót.
Sem mörgum er kunnugt telja Kínverjar rúmlega 1,3 milljarða alls. Sirka þrjátíu og sex þúsund prósent fleiri en Íslendingar. Af því leiðir að það eru þúsundir og jafnvel tugþúsundir í röðinni á undan þér að negla hræbillegan flatskjáinn hjá hinu kínverska Elko. Jafnvel þó þú mætir sólarhring áður en opnað er fyrir sölu. Og það er áður en kínverski meðaljóninn fær frí.
Kínversku áramótin eru galin út í eitt. Ekki af því að hátíðarhöld séu neikvæð per se. Fólk þarf jú aðeins að lyfta sér upp endrum og sinnum.

Svo þig langar með rútu? Gangi þér vel og taktu með nesti í röðina…
Öllu fremur sökum þess að allir launþegar í landinu fara í frí á nákvæmlega sama tíma og þar með talið yfir kínverska nýárið. Sem, nota bene, er ekki 31. desember eins og hjá okkur á köldum klakanum. Neibbs. Þú þarft eiginlega að giska á hvenær Kínverjar halda sín áramót. Þau geta verið 24. janúar en þau geta líka átt sér stað 20. febrúar. Giska eða gúggla.
Fyrir ævintýragjarna gæti sá tími verið heillandi. Tugmilljónir á þvælingi á sama tíma er príma kódak-móment ekki satt?
Sannarlega en það kostar sitt. Eða hvernig heldurðu að sé að þvælast um borgir og bæi Kína þegar 1,3 milljarður manna í landinu fær langþráð frí og vill heimsækja foreldrana í sveitaþorpunum?
Með öðrum orðum: þú kemst hvorki lönd né strönd yfir þann tíma. Ekki fremur en Kínverjar sjálfir. Því þrátt fyrir aldeilis frábæra innviði; hraðlestir par exellans, rútur á heimsmælikvarða og ferjur sem toppa allt á vesturlöndum, er ekki nokkur leið að koma 1,3 milljarði til og frá vandræðalaust.
Og þú sem varst súr yfir 20 manna röð í Elko eftir nýja flotta snjallsímanum…




