Ekki nokkur maður veit hvernig framtíðin er í fluginu. Mynd Icelandair

F ara þarf aftur næstum eitt ár, til 11. september 2021, til að finna einstakling sem gefur flugfélaginu Icelandair meira en tvo í einkunn fyrir þjónustu af tíu mögulegum. Flugfélagið nú með heildareinkunnina 5 hjá hinum virta flugmiðli Skytrax en sá er einn af fáum sem krefst þess að tjáendur sanni að þeir hafi raunverulega flogið með því flugfélagi sem fjallað er um.

Fávís manneskja gæti haldið að með tugmilljarða ríkisstyrkjum meðan á Covid stóð og nógu löngu stoppi til að eigendur og stjórnendur gætu nú aldeilis sett haus í bleyti til að draga upp arfaslakt fótspor þessa flaggflugfélags landsins.

En kannski þess vegna er sama manneskja fávís. Því Icelandair, fyrir utan að þiggja tugmilljarða af skattfé, segja upp hundruðum starfsmanna og lækka laun allra nema stjórnenda fór akkurat hina leiðina. Hækkuðu laun stjórnenda og gáfu sjálfum sér feita bónusa fimm sekúndum eftir að milljarða króna af sköttum almennings runnu til að halda fyrirtækinu á floti.

Ergo: alls ekki versla við Icelandair ef þú mögulega kemst hjá því…

Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉