Það vita þeir sem tekið hafa skref inn í fríríkið Kristjaníu við Christianshavn í Kaupmannahöfn að þar er fátt ýkja eðlilegt. Raunar hefur fríríkið tekið miklum breytingum til hins betra síðastliðin ár en þó ekki meira en svo að jólamarkaðurinn í fríríkinu er æði sérstakur og frábrugðinn öðrum slíkum.

Jólamarkaður með örlítið öðruvísi sniði en gengur og gerist 🙂

Sá fer fram í hinnu þekktu Gráu höll, Den Grå Hal, í Kristjaníu og er æði vinsæll því þar eins og annars staðar í fríríkinu eru hlutirnir með öðru sniði. Hvaða jólamarkaðir aðrir bjóða gestum og gangandi upp á nudd sísona með jólaglögginu? Nú, eða spámenn og konur sem veita ýmsar upplýsingar um framtíðina sem þú vissir ekki.

Þarna má vissulega finna ýmsa hluti tengda jólunum og hátíðinni en stór hluti markaðarins minnir á markaði í fjarlægum löndum. Framandi kryddvörur eru hér í úrvali þó slíkt eigi nú lítt erindi um jól og ekki síður er hér til sölu litríkur fatnaður sem á heldur ekki ýkja mikið erindi inn á flest hefðbundin heimili.

Hér er þröngt og vel troðið enda markaðurinn aðeins opinn frá 14 til 20 á virkum dögum og 12 til 20 um helgar og aðeins frá 1. desember fram til 20. desember ár hvert. En skrambi er hingað gaman að koma til tilbreytingar.