G árungarnir, hverjir sem þeir nú eru, kalla það hefnd Montezuma þegar ferðalangar verða fyrir því óláni að fá niðurgang á brölti sínu á erlendum slóðum. Ólán er það sannarlega alltaf og hefur á stundum mun verri afleiðingar en það.

Segir allt sem segja þarf. Mengað vatn er sökudólgur númer eitt, tvö og þrjú þegar kemur að niðurgangi
Reyndin er að niðurgangur er töluvert algengur meðal ferðamanna sem fara út fyrir þægindarammann og þvælast um í þeim löndum þar sem hreinlæti og aðgengi að hreinu vatni er af skornum skammti.
Lætur nærri að það séu velflest ríki heims nema svokölluð vestræn ríki. Jafnvel í sumum þeim vestrænni er hreinlæti stundum ekki upp á marga fiska.
En þá er ekki sagan sögð. Staðfest er að hlutfallslega flestir Bretar á faraldsfæti fá niðurgang á Spáni af öllum stöðum. Mun fleiri hanga á klósettinu þar en í löndum Asíu eða á eyjum Karíbahafs.
Það er hreint ekkert auðvelt að koma í veg fyrir að bakteríur rati ofan í mallakút sem er meginástæða niðurgangs. Í fátækari löndum er meira að segja stundum ekki hægt að treysta vatni sem selt er í flöskum enda vatnslindir mjög víða orðnar mengaðar og óprúttnir selja hiklaust vatn í innsigluðum umbúðum sem þó hefur verið fyllt á í næsta krana. Nægir að benda á hinn siðspillta eiganda hótel Adam í Reykjavík sem gott dæmi um skíthaus sem kreistir viðskiptavini sína á þann hátt.
Hér eru nokkur ráð til gagns og gamans hvernig best er að forðast þann leiðinda viðbjóð sem lapþunnar hægðir eru í langan tíma í senn:
♥ Gæta skal vandlega að því sem þú lætur innfyrir varir. Yfirleitt er átappað vatn í lagi og þá frekar líklegt að vatn stærri og þekktari framleiðenda sé í lagi. Sömuleiðis er yfirleitt alltaf í lagi að dreypa á drykkjum sem hafa verið soðnir í tætlur.
♥ Í allra fátækustu löndunum eru framsækin sprotafyrirtæki sem það stunda að fylla á tómar flöskur og brúsa og selja sem nýtt vatn. Oftast er auðvelt að koma í veg fyrir að drekka slíkt með því að gæta þess að innsigli sé á öllum flöskum sem drukkið er úr, þó ekki gefið því þeir allra framtakssömustu kunna að innsigla drykkjarflöskur svo allt líti eðlilega út. Best að reyna að komast að því hvaða „fyrirtæki“ er að baki og hvort það finnist til dæmis á Google.
♥ Þurrkaðu vandlega stúta á dósum og flöskum áður en tekinn er sopi. Algengt er að götusalar og verslanir utan stærri borga geymi bjór og vatn í vatnskælum. Baktería á stútnum er jafn líkleg til að valda niðurgangi og baktería í sjálfum drykknum.
♥ Gæta skal þess að rör í drykkjum séu ný og hrein. Ekkert nýmæli er að veitingamenn ýmsir brúka rör aftur og aftur og láta nægja að skola í vatni í millitíðinni.
♥ Leiki vafi á einhverju er aðeins ein leið í boði og það er að sjóða vatnið eða drykkinn í lágmark fimm mínútur. Einnig er hægt að brúka íodín töflur til að hreinsa vatnið en það er ekki hundrað prósent öruggt.
♥ Undir engum kringumstæðum drekka drykk með klökum. Oftar en ekki er eftirlit með slíkri framleiðslu ekkert eða í besta falli öllu minna en með sjálfu vatninu. Bakteríur elska vatn í föstu formi ekkert minna en hitt. Þetta var til dæmis stórt vandamál á Kanaríeyjum fyrir nokkru. Vatnið hæft til drykkjar en klakafyrirtæki hirtu lítið um þrifnað.
♥ Burstaðu tennur með vatni úr innsiglaðri flösku og hafðu munninn lokaðan þegar þú tekur sturtu.
♥ Gættu að öllum mat. Ýmsan mat verður að skola og hreinsa með vatni og sé vatnið mengað liggur leið þín beint á klósettið en ekki áfram í fleiri ævintýri. Hráir ávextir eða ávextir með skinni eru út og sömuleiðis allt salat. Þá er gott að forvitnast um hvort mjólkurvörur hafi verið gerilsneyddar. Alltaf skera í allt kjöt til að ganga úr skugga um að það sé eldað alveg inn að beini.
♥ Sé vegamatur ómissandi, eins og er reyndin víða, er gott að beina viðskiptum til þess sölumanns sem mest hefur að gera. Þar allavega er meiri hreyfing á þeim vörum sem til sölu eru og því minni líkur að einhver kvikindi hafi sest þar að.
♥ Ekki halda að fyrst heimamenn geta borðað ýmislegt þá getir þú það líka. Þeir eru vanir annars konar fæði en þú og í því liggur heljarinnar munur gagnvart bakteríum.
♥ Verði vart við bunugang þrátt fyrir allt saman skal hafa í huga að það er víða sem hvorki finnast klósett, rennandi vatn og þaðan af síður klósettpappír. Alltaf eiga eina rúllu eða svo í farangrinum.
PS: Montezuma var höfðingi Mexíkóa þegar Cortez hinum spænska rak þar á land árið 1492 með tilheyrandi blóðsúthellingum og viðbjóð að spænskum hætti. Montezuma sjálfur tók vel á móti spænska skíthælnum en var svikinn og reyndi að fá fólk sitt til að eitra fyrir spænsku drjólunum. Ef allir Spánverjarnir væru með allt niðrum sig með niðurgang yrði auðveldara að ganga frá þeim. Það gekk ekki eftir.




