Úttekt Fararheill.is leiðir í ljós að ekki er ýkja vænlegt að notfæra sér hótelbókunarvélar flugfélaganna Icelandair og Iceland Express. Samanburður á HRS bókunarvél Icelandair, Booking bókunarvél Iceland Express og leitarvélinni HotelsCombined, sem að mati ritstjórnar Fararheill er sú besta þessi dægrin, leiðir í ljós að sú síðastnefnda ber af.
Ritstjórn leitaði að sömu þremur hótelunum í þremur mismunandi borgum á sama tíma og bar saman verð bókunarvélanna þriggja. Í öllum tilvikum kom HotelsCombined fram með bestu tilboðin. Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:
- London, Hotel Rembrandt, tveggja manna herbergi 25 – 30 mars 2011.
HRS (Icelandair): 148.063 krónur
Booking (Iceland Express): 148.405 krónur
HotelsCombined: 142.794 krónur
- Kaupmannahöfn, Scandic Front, tveggja manna herbergi 8 – 12 júní 2011.
HRS (Icelandair): 128.522 krónur
Booking (Iceland Express): 119.750 krónur
HotelsCombined: 101.635 krónur
- Alicante, Melía Alicante, tveggja manna herbergi 15 – 29 ágúst 2011.
HRS (Icelandair): 305.801 króna
Booking (Iceland Express): 305.801 króna
HotelsCombined: 299.396 krónur






