Flugfélagið Iceland Express býður þessi dægrin svokölluð kynningarverð til nýrra áfangastaða sinna í Bandaríkjunum næsta sumar. Auglýst verð til borga á borð við Boston er 22.900 krónur aðra leiðina og aðra leiðina til Chicago á 29.900 krónur. Eru tilboðin vel þess virði að grípa.
Þó ekki komi fram í auglýsingum félagsins að fargjöldin til baka eru aðeins dýrari er um ágæt verð að ræða en hefðbundið verð IE til Boston er um 33 þúsund og því getur ferðalangur sem kaupir tilboðsferð nú sparað sér hátt í fimmtán þúsund krónur. Sami sparnaður næst með kaupum til Chicago á kynningarverðinu og því hægt að spara sér eina nótt á ágætu hóteli miðað við peninginn.
Heimasíða Iceland Express hér.






