S prenging hefur orðið á fjölda ferðamanna til Svíþjóðar síðustu ár og enginn virtist um tíma get útskýrt auknar vinsældir. Ekki fyrr en menn áttuðu sig á að bækur Stieg Larsson um hið einkennilega par Lisbeth Salander og Mikael Blomkvist voru komnar út í enskumælandi löndum og seldust grimmt.
Sem við manninn mælt höfðu margir ekki fyrr lagt bókina frá sér en sest var niður og skipulagt ferðalag til Svíþjóðar. Slíkur bókmenntatúrismi hefur færst mjög í aukanna og gera nú allnokkur fyrirtæki á heimsvísu út á ferðir um slóðir hinna og þessara söguhetja í vinsælum skáldsögum.
Einn vandi var þó á í Svíþjóð. Ferðamenn lentu í tómum ógöngum við leit að smábænum Hedestad sem er sögusvið fyrstu bókar Larssons. Hedestad er nefninlega ekki til í raunveruleikanum. Það er þó sennilega eini staðurinn sem ekki finnst á korti í alvöru og hafa nú verið stofnsett minnst þrjú fyrirtæki í Stokkhólmi sem ferja fólk um bæi, íbúðir og götur þær sem Salander og Blomkvist ganga í bókunum og kvikmyndunum.
Staðir eins og MellqvistKaffebar og Kvarnen barinn í Stokkhólmi eru nú fullir af ferðamönnum á annatímum. Báðir þessir staðir finnast á eynni Södermalm. Þá vilja margir sjá „heimili“ Blomkvist að Bellmannsgatan 1.
Sé áhugi að vita meira eða taka Larsson túr í Stokkhólmi er nóg að gúggla Stokkhólm og Larsson eða Millennium túrinn. Ekki halda eitt augnablik að þó nokkuð sé síðan bækurnar komu út að áhuginn fari dvínandi. Þvert á móti er þetta vinsælasti túrinn í Stokkhólmi.





