Í slendingar velflestir eru hvað súrastir hvað varðar fall krónunnar fyrir björg aftur og aftur að ferðalög erlendis sem höfðu lengi vel verið fastur liður í tilveru margra hafa í mörgum tilfellum tvöfaldast í verði. Gildir þar einu hvort ferðast er á eigin vegum eða gegnum ferðaskrifstofu.
Ritstjórn Fararheill.is telst til að verð á skipulögðum fjölskylduferðum hjá ferðaskrifstofum hafi hækkað frá árinu 2008 um 20 til 30 prósent að meðaltali þó það hafi vissulega gengið til baka þessi allra síðustu misseri.
En neyðin kennir naktri konu að spinna og eftir þriggja vikna ferðalag um Frakkland getur ritstjórn gefið átta eðalráð til að láta litla peninga duga lengra en ella. Auðvitað þarf að beita sig stundum hörðu þegar fólk rekst á heillandi hluti í verslunum en þannig er enn hægt að ferðast um Frakkland og reyndar víðar um Evrópu án þess að deila greiðslum fyrir dúlleríið í tólf mánuði á vísa.
♦ Þegar sest er niður til málsverðar eða bara hvíldar á kaffihúsi er þjóðráð að panta carafe d´eau. Það er kanna af kranavatni og kostar yfirleitt ekki neitt. Panti fjögurra manna fjölskylda sér eina vatnsflösku hver hins vegar kosta þau herlegheit 2.000 krónur eða um 500 hver flaska enda fær familían þá eitthvað „stórkostlegt“ vatn frá Perrier eða svipuðum fyrirtækjum. Kranavatn í sveitum Frakklands er undantekningarlaust ágætt og öruggt að drekka.
♦ Sama fjölskylda sparar sér verulegar upphæðir með því að panta ávallt rétt dagsins sem allir veitingastaðir bjóða upp á. Plat du Jour er yfirleitt tví- eða þríréttað og fyllir mallakút á fimm mínútum jafnvel þó ekki sé allt á disknum í uppáhaldi hundrað prósent. Það er þó alltaf ferskt og oftast það ferskasta sem staðirnir bjóða dag hvern. Þessir réttir eru að jafnaði um helmingi ódýrari en að panta af matseðli.
♦ Sé farið í gönguferðir má spara góðan skilding að kaupa baguette og ost í næstu verslun og græja sjálf lítið nesti. Slíkur biti á kaffihúsum eða veitingastöðum kostar vel yfir þúsund krónur en úr verslun má sleppa með nesti fyrir fjóra fyrir sama þúsundkall og dugar einum á veitingastað.
♦ Alfarið skal sleppa því að kaupa morgunverð á hótelum í Frakklandi og reyndar gildir það víðast hvar í Evrópu. Morgunverður er sjaldan í boði undir tólf hundruð krónum á mann á gististöðum og jafnvel mun dýrara en það. Hins vegar sleppur maður yfirleitt mun billegar á næsta kaffihúsi með léttan morgunverð fyrir helming þeirrar upphæðar.
♦ Sé expresso bolli að heilla er sá unaðsdrykkur á stöðum í Frakklandi um helmingi ódýrari en á Íslandi.
♦ Alltaf kaupa vín í könnum en ekki á flöskum á veitingastöðum. Könnuvínin mörg ótrúlega góð og koma næstum alltaf úr næsta nágrenni. Þau kosta líka um helmingi minna að jafnaði en ódýrasta flaska sem í boði er.
♦ Markaðir eru víða í Frakklandi og oftar en ekki er sama vara í boði hjá mörgum söluaðilum. Staðreyndin er að þó allir séu þar saman á litlum bletti munar töluverðu á verðum á sömu vörum. Verðsamanburður mun spara skilding.
♦ Labbaðu allt! Sé ekki verið að þvælast um stórborgir Frakklands er takmörkuð þörf á bílaleigubíl. Rútu- og strætisvagnakerfi í sveitum er víðast mjög gott og ferðir tíðar.





