H ún heitir ArtBasel, fer eðli málsins samkvæmt fram í Basel í Sviss og þykir langmerkilegasta nútímalistahátíð heims ár hvert.

Ein fjölmargra viðburða á ArtBasel. Mynd See-ming Lee

Ein fjölmargra viðburða á ArtBasel. Mynd See-ming Lee

Um fimm daga listaveislu er að ræða og þann tíma meira en tvöfaldast íbúatala borgarinnar. Á meðal gesta eru listamenn, eigendur gallería og listaverkahúsa um víða veröld og hart er barist um hvert einasta pláss meðan á sýningunni stendur. Af því leiðir að almenningur hefur lítil sem engin efni á að versla sér verk sem þar eru sýnd en reyndar eru þrjár minni sýningarhátíðir tengdar ArtBasel þar sem verk minni spámanna fá að njóta sín og eru mörg verkanna þar vel á kaupgetusviði meðalmannsins.

Liste, Voltashow og Belatina heita þær og fara fram annars staðar í bænum. Lista og Voltashow eru tileinkaðar minna þekktum málurum en á Belatina eru eingöngu til sýnis verk listafólks frá frá Suður Ameríku. Sú síðastnefnda er ekki alltaf í gangi eins og hinar tvær.

Þó lítið verði úr kaupum á ArtBasel er töluvert ævintýri hér að upplifa enda byrjar húllumhæið viku fyrir opnun og lýkur í raun ekki fyrr en viku eftir lokun. Þemuveislur fara fram víða og galleríin í borginni opna hurðir sínar upp á gátt fram eftir kvöldum og ekki er fráleitt að sjá á vappinu fyrirfólk í listaverkaheiminum. Ein úr ritstjórn rakst bókstaflega utan í Mick Jagger hér á götu 2010.

ArtBasel á sér yngri systir en vasaútgáfa af ArtBasel fer líka fram í Miami Flórída. Hún er þó minni í sniðum og ekki enn jafn heimsþekkt eins og móðirin.

ArtBasel fer öllu jöfnu fram um miðjan júní. Algjört toppstopp fyrir listunnendur.

Heimasíða ArtBasel.