F rægasta minnismerki Frakklands og eitt það frægasta í veröldinni er Eiffel turninn í París og þangað koma tugir milljóna ár hvert til að berja hann augum. En það er eitt og annað sem kemur á óvart varðandi turninn.

Ansi merkilegur þessi Eiffel turn Frakka
♥ Hann skreppur saman Opinber hæð Eiffel er 299.923 metrar en það er aðeins á sumrin. Á veturna skreppur stálið saman vegna kulda og er hann þá fimmtán sentimetrum styttri en ella.
♥ Málningin er blaut Sums staðar. Átján mánuði tekur að mála turninn og það þarf að gera á þriggja ára fresti. 60 tonn af málningu þarf til.
♥ Auglýsingar bannaðar Þó engar sjáist auglýsingar á turninum var það ekki alltaf svo. Lengi vel auglýsti Citröen á þremur hliðum hans og hernámslið Þjóðverja var ekki lengi að hengja kennimerki sín á hann í Seinni heimsstyrjöldinni.
♥ Vinsæll og veit af því Sjö milljónir manna fara árlega upp í turninn sem eru helmingi fleiri en skoða New York af toppi Empire State byggingarinnar.
♥ Peningavél Viðskiptavelta turnsins, veitingastaðanna tveggja sem þar eru og skautasvells sem sett er upp af og til nam tæpum sextán milljörðum króna árið 2015.




