
Skattayfirvöld rannsaka forstjórann en hann fær samt jafnan tíma og fólk sem stendur skil á öllu sínu. Skjáskot RÚV
RÚV fjallaði fyrr þennan daginn um kvartanir starfsmanna flugfélagsins Play til verkalýðsfélaga. Skömmu síðar steig fram á sjónarsviðið forstjóri Play, sem grunaður er um alvarleg lögbrot, og gerir lítið úr.
Hvað skal halda fyrir Jón og Gullu sem lesa?
Þetta er jú klassísk kranablaðamennska sem gefur deilendum vissulega færi á að koma sínu á framfæri en færir lesendur eða áhorfendur engu nær um sannleikann. Týpískt RÚV.
En öll búum við yfir þokkalega heilbrigðri skynsemi og kunnum flest að leggja saman tvo og tvo. Hvaða líkur eru til dæmis á að illa borgað starfsfólk Play hafi að eigin frumkvæði haft áhuga á því að lækka laun sín töluvert til þess að fleiri fái vinnu hjá Play?
Þarf ekki langa dvöl með haus í bleyti til að vita að þegar kemur að lifibrauðinu eru Íslendingar ekkert almennt að kasta sér á sverðið fyrir aðra og ókunnuga. Eins dauði annars brauð ekki satt?
Hvaða ástæðu hefur forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) mögulega til að gera lítið úr tilteknu fyrirtæki á opinberum vettvangi? Mögulega þá að moldríkir forsvarsmenn Play stofnuðu sitt eigið verkalýðsfélag fyrir staffið. Verkalýðsfélag sem tók mið af launatekjum í Serbíu árið 1982.
Eitthvað rangt við það?
Sannarlega. Því enginn Íslendingur lifir tvær vikur á því sem Serbar höfðu í mánaðartekjur fyrir 40 árum síðan. Þess vegna er gagnrýni ASÍ ósköp eðlileg. Því ef eina leiðin til að reka lággjaldaflugfélag frá Íslandi er að greiða fólki þvílík sultarlaun að atvinnulausir prísa sig sæla er eitthvað alvarlegt að.
Svo þarf að fara að skoða þessa aumu kranablaðamennsku RÚV. Að sæmilega virtur forseti ASÍ fái sama tíma og rúm og maður sem hugsanlega hefur svikið tugmilljónir undan skatti gegnum tíðina er hundrað prósent fráleitt.
ASÍ-PLAY 1-0.







