Þ að er sjaldan mjög fyrirséð en það er auðveldlega hægt að fá of mikið af svo góðu. Borgaryfirvöld í Feneyjum þekkja það á eigin skinni og nú skal gripið til aðgerða.

Afar fátt ljúft og notalegt við slíka mannþröng. Þetta er samt raunin í velflestum götum Feneyja að sumarlagi.

Um áraraðir gerðu yfirvöld í Feneyjum allt sem í þeirra valdi stóð til að fjölga ferðafólki og þar fyrst og fremst horft til þeirra fjármuna sem ferðamenn skilja eftir sig og ekki síður þau störf sem þeir fjármunir skapa. Svo langt gekk þetta að um tíma greiddi borgin skemmtiferðaskipum sérstaka þóknun fyrir að heimsækja þessa merku perlu heimsins.

En fyrir tíu til fimmtán árum síðan fór að síga á ógæfuhlið. Ferðamönnum fjölgaði svo duglega og yfir mun lengri tíma en áður að helstu torg og stræti voru troðin af fólki frá sólarupprisu til sólarlags. Stóraukin eftirspurn eftir mat, drykk og gistingu þýddi miklar verðhækkanir sem komu auðvitað einnig við kaunin á íbúunum sjálfum.

Nú hafa menn reynt um fjögurra ára skeið að takmarka komur skemmtiferðaskipa og það tekist að hluta til. Ennfremur verið sett takmörk á hversu margar eignir eitt fyrirtæki eða einstaklingur getur átt og leigt út en slík fyrirtæki hundsuðu íbúðaþörf heimamanna og einblíndu á fjáðan ferðamanninn. Á annatíma að sumarlagi er sjaldan hægt að fá litla skítakompu á Airbnb undir 70-80 þúsund krónur per nótt.

Ofangreint ekki dugað til og nú skal taka næsta skref. Skref sem er næsta óþekkt í ferðabransanum. Nú skal rukka aðgangseyri að Feneyjum. Litlar 1500 krónur eða svo og það þarf meira að segja að bóka heimsóknina fyrirfram á netinu. Hlið verða sett upp við alla helstu leiðir inn í gömlu borgina og þar rukkað eins og um næsta tjaldsvæði sé að ræða.

Ekki er alveg óþekkt að ferðamenn greiði örlítið meiri skatt fyrir gistingu hér og þar í borgum þar sem mikill straumur ferðafólks hefur valdið usla meðal heimamanna en slíkt fer undantekningarlaust í hirslur ríkisins á flestum stöðum og happa-glappa hvort borgirnar njóta góðs af. Í þessu tilfelli fara peningarnir rakleitt til borgarinnar sjálfrar.

[totalsurvey id=“1″][/totalsurvey]