H lutfallslega fáir ferðamenn til Skotlands, nema ef til vill veiðimenn, skoða strjálbýlan norðurhluta landsins og enn færri gera sér far um að skrölta um á hálendinu á þeim slóðum. En ef þú lætur þig hafa það gæti blasað við dálítið merkileg og skemmtileg sýn.

Það víðar en við Norðurskautið sem hvítabirnir þvælast óheftir um. Mynd HWP

Hvað gæti það verið?

Jú til dæmis snjóhlébarðar og hvítabirnir!!! Ef það kemur ekki á óvart í hálöndum Skotlands finnast hér líka smápöndur, töluvert af úlfum og síðast en ekki síst fimm tígrisdýr.

Ók, svo það finnst dýragarður á hálendi Skotlands? Hvað er merkilegt við það?

Sú staðreynd kannski að ofangreind dýr eru ekki í búrum af neinu tagi. Þau valsa um tiltölulega frjáls og óháð og hafa tæknilega heilan þjóðgarð til að spássera um.

Staðurinn sem hér um ræðir er Cairngorms þjóðgarðurinn en sá er stór og mikill og innan hans einhverjir hæstu tindar Skotlands. Mörk garðsins gróflega í klukkustundar fjarlægð frá Aberdeen á austurströndinni og um 45 mínútna fjarlægð frá Inverness á norðurströndinni.

Í þjóðgarðinum finnst þjónustumiðstöðin Highland Wildlife Park sem er svona vísir að dýragarði og það er í kringum hann sem hin hálfvilltu dýr halda til að mestu. Þarf enda á köflum að gefa þeim mat þegar ekkert finnst í náttúrunni.

Sérdeilis skemmtilegt stopp en sökum takmarkana á heimsóknum verður yfirleitt að bóka heimsókn hingað með fyrirvara. Í ofanálag eru skosku hálöndin fjarska falleg og margt ber fyrir augu þeirra sem láta sig hafa túr hingað.