D jammið og stemmarinn í New Orleans við Mississippifljótið í Louisiana í Bandaríkjunum er heimsþekkt fyrirbæri þó ekki sé nema vegna þess að Kaninn kann þá list best allra að koma krummaskuðum á framfæri gegnum kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Ef Frakkar kynnu það líka væri Orleans ekki síðri áfangastaður.

Helsta miðborgartorg Orleans þeirrar frönsku. Aðeins tilþrifameira en miðborg New Orleans 🙂

Eflaust gera flestir sér grein fyrir að bandaríska borgin er nefnd eftir frönsku borginni og fyrir því sú einfalda ástæða að Frakkar réðu ríkjum í hluta þess sem nú eru suðurríki Bandaríkjanna þegar stórveldi þess tíma gerðu strandhögg vestanhafs.

Varla var kominn kofi niður í New Orleans þegar yfirmaður franska heraflans á svæðinu, hertoginn af Orleans, ákvað umsvifalaust að skíra pleisið New Orleans. Lítt frumlegt auðvitað en kannski glímdi kauði við brennandi heimþrá.

Borgirnar eiga þó minnst eitt sameiginlegt; báðar standa þær við frægar ár. New Orleans auðvitað við Mississippi og sú franska við Leirá eða Loire á frummálinu. Og þó Orleans hafi að mestu dottið af korti sjómanna nú til dags þá var reyndin sú á sínum tíma að borgin var ein helsta og þekktasta höfn Frakklands. Eins konar Hamborg Frakka og sökum þess ríkasta borg landsins ásamt París og Rúðuborg.

En Orleans er fræg fyrir annað

Franska borgin er svona þægilega lítil, eða stór, eftir því hvaða gleraugu fólk hefur á nefinu. Borgarbúar litlu færri en í Reykjavík Íslands og því enginn skortur á góðum miðbæ, flottum veitingastöðum og öðru því sem borgarbúar þurfa á að halda til að njóta og vera sáttir við tilveruna.

Borgin er ekkert stútfull af stórmerkum hlutum þó vissulega megi hér finna kostulegar byggingar og reisulega kastala. Engu að síður er Orleans ár eftir ár einn allra vinsælasti áfangastaður Frakka sjálfra. Enda líta sumir þeirra á ferð hingað sem hálfgerða pílagrímaferð. Ástæða þess er ein allra mesta hetjan í sögu Frakklands: Jóhanna af Örk.

Hús Jóhönnu af Örk er merkilegasta safnið í Orleans.

Þessi franska sveitastelpa er samkvæmt sögusögnum eina ástæða þess að Englendingar lögðu Frakkland ekki undir sig í heilu lagi í Hundrað ára stríði þjóðanna á fimmtándu öld. Stríði sem innrásarherinn var að vinna næsta auðveldlega þegar Jóhanna, sem sagðist vera send af guði almáttugum, blés frönskum svo miklum byr í brjóst að þeir hrundu árás Englendinga og hröktu þá á flótta til baka.

Þessi merkilega saga Jóhönnu er sögð í þaula í máli og myndum í Húsi Jóhönnu af Örk, Maison de Joan d’Arc. Fagurri gamaldags byggingu í miðborginni sem hver Frakki verður að heimsækja minnst einu sinni á lífsleiðinni. Byggingin er reyndar ekki svo gömul því safnið var sprengt í loft upp í Síðari heimsstyrjöldinni og endurbyggt eftir stríðið.

Gerðu þér endilega ferð hingað. Borgin rétt í klukkustundar fjarlægð frá París og ívið minni ys og þys.