S umir kaupa sér ferðahandbækur. Aðrir æða rakleitt á næstu upplýsingastofu. Enn aðrir valsa stefnulaust um allar trissur meðan lítill hópur pumpar strax næsta vinalega heimamann. Ein grúppa til gleymdi alveg að gera ráðstafanir og bíður bara eftir einhverjum til að leiða hópinn.

Grá og guggin er Hamborg á köflum. En hún á sínar príma hliðar líka 😉
Einföldun vissulega en gróflega má planta okkur flestum í einhvern þann hóp sem að ofan er nefndur þegar við heimsækjum erlenda borg fyrsta sinni. Öll erum við ólík og forvitni og þor mismikið.
Okkar reynsla er sú að ótrúlega stór hópur hreyfir sig ekki spönn frá rassi erlendis nema með formlegan leiðsögumann í fararbroddi. Leiðsögumann sem fer auðvitað aðeins á allra, allra þekktustu staðina og lætur það nægja. Annar stór hópur er búinn að lesa og stúdera kort og staði vikum og mánuðum fyrir tímann og stikar göturnar án þess að líta upp af korti.
Báðir ofangreindir hópar henta vel þeim er þora ekki að treysta á sig sjálfa erlendis. Það getur jú verið stórhættulegt að þvælast um mállaus og áttavillt í erlendri borg ;).
Við hér hjá Fararheill öll meira fyrir að valsa um stefnulítið og hikum ekki við að leita ráða hjá næsta heimamanni ef eitthvað er. Alltaf leiðinlegt að yfirgefa erlenda borg án þess að hafa skrafað við heimamann eða konu, fólk sem er undantekningarlítið mjög til í að aðstoða erlent ferðafólk samkvæmt okkar reynslu hvar sem er í heiminum.
Að því sögðu er ekki oft hægt að horfa á eitt einasta myndband og fá á einu bretti upp nánast alla merkisstaði í einni og sömu borginni. Ekki bara merkisstaði í menningar- eða sögulegu tilliti heldur og merkilegustu knæpurnar og merkilegustu götusalana og merkilegastu hitt og þetta án þess svo mikið að glugga einu sinni í ferðahandbók.
Þannig myndband hafa stúdentar frá Tækniháskólanum í Hamborg sett saman af snilld. Það vissulega átta mínútna langt en á þeim tíma má líka vitna nánast alla merkisstaði borgarinnar á einu bretti. Líka þá staði sem heimamönnum sjálfum finnst til koma en erlendir gestir vita fátt eitt af.
Alveg kjörið tæki til að kynna sér Hamborg áður en för þangað hefst 🙂




