Skip to main content

Þ að getur verið dálítið ógnvekjandi að heimsækja New York fyrsta sinni. Risastór, gegnumsýrandi hávaði um allar trissur, fólk tiltölulega ruddalegt og erfitt getur verið að rata.

Stór, mikil og stundum dálítið ógnvekjandi. Mynd Daniel Mennerich

Stór, mikil og stundum dálítið ógnvekjandi. Mynd Daniel Mennerich

Þá eru góð ráð oftast dýr nema þú þekkir einhvern í bænum eða sért í fylgd einhvers sem til þekkir. Ella gæti mikill tími farið í fáránlegustu hluti eins og að átta þig á samgöngukerfinu, þjórfé á veitingastöðum og börum eða öðru því sem er æði frábrugðið hlutum sem þú þekkir.

Ein frábær leið til að komast í kynni við aðra í sama báti, sjá margt það helsta í borginni og vera hundrað prósent örugg á sama tíma er að skrá þig í frígöngu. Fríganga er léleg þýðing ritstjórnar á þeim hópum og fyrirtækjum sem bjóða ferðir um borgina fyrir ekki neitt. Yfirleitt er um gönguferðir að ræða sem taka þetta þrjár til fimm stundir en stöku skipti er líka alvöru ferð í boði með bíl eða rútu.

Eitt slíkt fyrirtæki sem góða fær einkunn ár eftir ár er Free Tours by Foot en þar leiða kunnugir þig um forvitnilega staði í New York og leiðsögnin kostar þig ekkert nema þú viljir greiða fyrir. Það er sem sagt ákvörðun hvers og eins hvort þú lætur fé af hendi rakna í lok túrsins.

Oftast nær eru slíkir túrar svo skemmtilegir að auðvitað skilur fólk peninga eftir og ástæðan sú að vegna þess að viðskiptavinir þurfa ekki að greiða neitt leggur leiðsögufólkið mikið aukalega á sig til að hver túr sé bæði skemmtilegur og fræðandi.

[vc_masonry_grid post_type=“post“ max_items=“6″ grid_id=“vc_gid:1573382693219-dcea38fe-6efa-5″ taxonomies=“571″]