Að bera afturendann hefur sjaldan þótt tiltökumál á Vesturlöndum. Slíkt oftar en ekki til gamans gert og sé það utan alfaraleiða er lítill skaði skeður. Það á hins vegar ekki við um flest lönd Asíu.

Að bera bossann er kjánaskapur almennt en við helgustu tákn marga landa Asíu er það merki um hundrað prósent lítilsvirðingu og fangelsisdómur liggur við. Mynd ThaiCreme

Tveir samkynhneigðir menn voru fyrir stuttu stöðvaðir á heimleið í flugstöð í Tælandi. Sem getur jú gerst burtséð frá kynferði alls staðar í heiminum. Nema þessir tveir Ameríkanar voru ekki stöðvaðir vegna gruns um smygl eða fíkniefna eða annars slíks sem getur tafið flugferðir. Nei, þeir voru stoppaðir vegna þess að þeir birtu mynd af sér á fésbókinni þar sem þeir voru berrassaðir við eitt helgasta hof Tælands.

Fáum sem valsa um lönd Asíu kemur til hugar að þessi tiltölulega fátæku lönd sem þvælst er um geri út hundruð manna til að fylgjast með samfélagsmiðlum og þá sérstaklega myndbirtingum erlendra ferðamanna. Það samt staðreynd.

Ameríkanarnir voru stálheppnir. Þeim gefið val um að greiða sekt á staðnum ellegar dúsa í fangaklefa meðan mál þeirra yrði tekið fyrir. Þeir kusu sektina enda sú aðeins 25 þúsund krónur íslenskar en hér ágætt að hafa í huga að það er ákvörðun hvers og eins lögreglumanns í Tælandi hvort hann eða hún beitir sektum eða sendir viðkomandi lóðrétt til dómara. Vægasta refsing í Tælandi fyrir að „niðurlægja“ helga staði landsins er TÓLF ÁRA FANGELSI svo eitt dæmi sé tekið. Svipuð lög gilda í Búrma, Kambódíu, Laos og Indónesíu.

Best að láta kjánaskap og vitleysisgang alfarið eiga sig í löndum þar sem fangelsi er annað orð yfir helvíti.