Staðan er þessi: þú ert nýútskrifuð/-aður hjúkrunarfræðingur og Landspítalinn býður aðeins 280 þúsund í byrjunarlaun meðan lágmarksleiga á gluggalausri skítakompu á höfuðborgarsvæðinu er 180 þúsund á mánuði og rottugangur innifalinn. Hvað skal gera?

Ekki beint kastali en ólíkt skárra en skítakompan í Reykjavík. Skjáskot

Víst er hægt að planta rassi tímabundið á Hótel Mamma og Pabbi. Nema að það er ekkert líf. Víst er hægt að stofna kommúnu og deila kostnaði við kompuna milli fimm einstaklinga. Nema hvað þú þarft þitt pláss. Pláss til að hugsa, skrifa, hitta ÞÍNA vini, nú eða bara drekka þig fulla/-an eða reykja kók í angist yfir dýrtíðinni á leigumarkaðnum.

Hin leiðin er að drífa sig til Ítalíu þar sem bláfátæk þarlend stjórnvöld eru að reyna að vernda sögufrægar byggingar um allt land með því að gefa þær!!!

Þú last þetta rétt. Ítölsk stjórnvöld hafa ekki efni á að viðhalda þúsundum bygginga í eigu ríkisins og þar á meðal hundruðir kastala og stórhýsa sem merka sögu eiga. Og nú er beinlínis verið að leigja klabbið út fyrir slikk eða í tilfellum beinlínis gefa byggingarnar.

Ekki halda að hér sé um að ræða pleis með útsýni yfir Via del Corso í Róm eða Corzo Venezia í Mílanó. Undantekningarlítið er hér um að ræða byggingar úti á landi og byggingar sem þurfa töluvert viðhald að auki.

En hei! Hver er ekki til í smá hasar varðandi endurnýjun húsnæðis nýskriðin úr skóla? Spýta hér, nagli þar og vinir og ættingjar veita hjálparhönd og voilà! Þú átt kastala 🙂

Allt um þetta hér.

Svo er líka ekkert að því að kíkja þangað í stutt frí 😉