Hvernig stendur á því að enginn má eignast alvarlega seðla á Íslandinu góða án þess að finna sig tilknúinn til að svindla aðeins á viðskiptavinum sínum?

Frábært verð til Edinborgar hinnar skosku. En hér liggur hængur undir steini eins og oftar. Skjáskot

Á vef Wow Air má sjá í fljótu bragði allra lægsta verð flugfélagsins á öllum þeirra leiðum. Sem út af fyrir sig er afbragðs þjónusta en eins og alltaf þegar græðgi blindar menn þá er hængur á.

Eins og sést hér til hliðar er allra lægsta verð með Wow Air til Edinborgar í Skotlandi á aðeins 5.999 krónur!!! Frábært verð á flugi til skemmtilegrar borgar.

En því miður vantar töluvert inn í ódýrt fargjald Wow Air sem hækkar farmiðann umsvifalaust um fleiri þúsundir króna. Illu heilli eru eftirlitsstofnanir ríkissins sofandi eins og alltaf og við tekin í þurran afturendann fyrir vikið.

Fyrir það fyrsta vantar að í auglýstu verði til Edinborgar er ekkert bókunargjald. Sem er þúsund krónur í viðbót við auglýst verð. Raunverð er þannig 6.999 krónur en ekki 5.999 krónur eins og Skúli Mogensen telur okkur trú um.

Skúli Mogensen með aðdáanda. Skúli er þessi til hægri. Mynd Wow Air

Ekki nóg með það. Auglýst verð miðast við að greitt sé með einhverju Netgíró drasli sem fæstir hafa hugmynd um hvað er. Eitthvað segði fólk er Bónus auglýsti kíló af nautalundum á 500 kall sem kostaði svo 990 krónur í búðinni vegna þess að viðskiptavinurinn er ekki meðlimur í Baggalútum.

En hreint ekki nóg með það heldur. Sé farið inn á þetta „allra lægsta fargjald“ til að bóka kemur annar hængur í ljós. Auglýst verð aðra leið gildir EINUNGIS ef bókað er fram og til baka. Með öðrum orðum þá getur Wow Air sett þúsund prósenta álagningu á heimferðina en auglýst útleiðina á 5.999 krónur. Lægsta fargjald er einfaldlega ekki í boði ef þú ætlar bara aðra leið.

Ekki þarf að taka fram að farþegar mega varla lengur vera í skóm án þess að það kosti aukalega hjá Wow Air og auðvitað er ekki gramm ókeypis að hafa með.

Wow Air auglýsir því hræbillega ferð aðra leiðina sem er svo alls ekki í boði þegar allt kemur til alls. Í hróplegu ósamræmi við neytendalög og reglur.

Ekki er neitt ríkisapparat að tékka á þessu og því kemst Skúli vinur okkar upp með ruglið. Raunverð per haus fyrir flug til Edinborgar og heim aftur er kringum 25 þúsund krónur báðar leiðir að lágmarki. Ekki tíu til fimmtán þúsund eins og ráða má af fyrstu tölum.

Óskandi væri að Neytendastofa setti ofan í milljarðamæringinn Mogensen vegna þessa en líkurnar á því svipaðar og Víkingur Ólafsvík verði næsti Íslandsmeistari í knattspyrnu.

Við verðum að passa okkur sjálf!