Það eru sérstaklega góðir peningar í tilteknum störfum. Læknar, flugmenn og bankastjórar fara seint á vonarvöl svo dæmi séu tekin. En það er ein óvænt starfsgrein sem kannski borgar betur en þessar: nafnabreytingafólk hjá flugfélögunum.

Ekki lítið sem nafnabreytingafólk flugfélaganna hefur upp úr krafsi fyrir litla vinnu.

Eins gott að vanda sig sem best þú getur þegar flugmiði er bókaður hjá Icelandair eða Wow Air. Minnsta villa við innslátt mun kosta drjúgt ef þörf verður á að lagfæra og þar ekki nokkur einasta miskunn í neinu tilviki.

Gleymdist eitt s í Gústafsson? Flug bókað sem Þórhildur þegar vegabréfið segir Thorhildur?  Nöfn verða jú að vera nákvæmlega eins og í vegabréfi til að komast klakklaust milli landa.

Öll getum við gert slík mistök. Ekki síst þegar verið er að bóka marga saman í einu. Við þreytt eða jafnvel bara lesblind. Ýmsar ástæður fyrir þörf á nafnabreytingum á flugmiðum.

En það mun kosta feitan pening.

Sért þú að bóka flug gegnum Wow Air og gerir mistök sem þú uppgötvar eftirá þarftu að gjöra svo vel að hafa samband við þjónustuver flugfélagsins þar sem nafnabreytingin kostar þig 1.699 krónur. Það virðist nú ekki mikið. Sérstaklega ekki í samanburði við Icelandair sem krefur fólk um 3.000 krónur fyrir sömu þjónustu.

En hér hangir súrt læri á spýtu. Sautján hundruð króna breytingagjald Wow Air gildir um hvern fluglegg. Sem merkir að hafir þú bókað fram og aftur til London og gleymt einum staf þá kostar lagfæringin alls 3.398 krónur á hvert nafn sem misritaðist. Hjá Icelandair gildir kostnaðurinn fyrir alla bókunina fram og aftur sé um það að ræða.

Nú er það svo að áður fyrr þegar farmiðar í flug voru úr marmara og steinhöggvara þurfti til að breyta nokkrum hlut eftirá var ósköp skiljanlegt að greiða þyrfti duglega fyrir. En nú þegar við lifum á gervihnattaöld og þessi hlutur sem kallast internetið er komið inn á öll heimili er afar vandséð að það taki starfsmann flugfélags lengur en örfáar sekúndur að lagfæra bókun sem farið hefur úrskeiðis.

Ok, kannski ekki sekúndur en alls ekki meira en tvær til þrjár mínútur í heildina nema um sé að ræða einvern algjöran viðvaning. Og þrjú þúsund krónur fyrir örfáar mínútur er með besta tímakaupi sem finnst á byggðu bóli þessi dægrin.

Ekki svo að skilja að kostnaðarsamar nafnabreytingar séu einskorðaðar við innlend flugfélög. Þetta tíðkast víða að taka fleiri þúsund krónur fyrir smávægilegar breytingar sem allar eru gerðar í tölvum á örfáum augnablikum.

Í öllu falli full ástæða til að vanda sig þegar bóka skal flug og ferðir. Kostakjör missa alla merkingu ef ofan á bætist hellingur af okurdýrum aukagjöldum.