Fljúgðu vel auglýsir Icelandair og reyna þannig að telja þér trú um að munur sé á að fljúga í svipuðum rellum hjá mismunandi flugfélögum. Kannski finnst einhverjum í raun betra að fljúga með Icelandair en ef sá hinn sami, eða sama, ætlar á Októberfest er verið að kasta peningum á glæ með íslenska flugfélaginu.

Álagning á ódýrustu sætum hjá Icelandair til Munchen yfir Októberfest er mörg hundruð prósent hærri en annarra á sömu leið.
Auðvitað eru þarna úti gallharðir Icelandair-aðdáendur sem hafa ekki flogið með neinu öðru flugfélagi síðan þeir hlutu heilaskaða í bílslysi árið 1986. Hinir, þessir sem enn geta klakklaust lagt saman tvo og tvo, vita sem er að þjóðráð er að líta aðeins í kringum sig áður en bókað er með Icelandair. Í það minnsta ef áhugi er að sækja heim stærstu hátíð heims: Októberfest í Munchen.
Gott dæmi um þetta er að það kostar mann að lágmarki 70% meira að skjótast nú á hina frægu hátíð Bæjaralands með Icelandair en það gerir með Airberlin samkvæmt úttekt Fararheill.
Segjum sem svo að áhugasamir vilji skottast í tæka tíð fyrir opnun hátíðarinnar þann 17. september næstkomandi og prófa hasarinn í tæpa viku frá 16. september til 22. september.
Lágmarksverð hjá Icelandair fyrir skottúrinn fram og aftur á sardínufarrými þá daga kostar þegar þetta er skrifað 74.095 krónur á haus eins og sjá má á skjáskoti hér neðar.
Tóm þvæla að greiða svo mikið fyrir níðþröngt sardínusæti hjá flugfélagi sem flýgur eldgömlum vélum. Nær lagi að smella sér inn á vef Airberlin og negla þar flug fram og aftur sömu daga með tösku í pakkanum niður í 44.751 krónu samtals.
Hmmm. Það ekki nema rétt tæplega 30 þúsund króna munur á nánast sama pakka. Nema vélar Icelandair nálgast risaeðlualdurinn meðan vélafloti Airberlin er rétt að slefa í leikskólaaldur plús mun minni mengun.
Er þetta einhver spurning 🙂









