Það var tími til kominn. Fararheill veðjaði árið 2013 að annar áfangastaður Wow Air vestanhafs yrði New York en það kolrangt mat. Nú hins vegar hafa púslin dottið á sinn stað og frá nóvember á þessu ári flýgur Wow Air beint daglega milli Keflavíkur og Nýju-Jórvíkur.

Aukin samkeppni til New York í vetur. Mynd Daniel Mennerich

Aukin samkeppni til New York í vetur. Mynd Daniel Mennerich

Þetta hið besta mál. New York heillar alla en hingað til höfum við þurft að skaufast með Icelandair á einokunarverði sem á ekkert skylt við eðlilegt og síðustu misseri einnig með bandaríska flugfélaginu Delta sem illu heilli hefur ekkert boðið lægra verð en Icelandair.

Burtséð frá því að fargjöld Wow Air geta líka kostað formúgur, og stundum meira en með Icelandair, má altént bóka að aukin samkeppni mun þrýsta almennu verði niður hjá öllum aðilum. Það vísindalega sannað og hefur verið reyndin hér líka.

Wow Air hefur þegar auglýst fargjöld niður í 14.900 krónur. Sem fyrr vantar inn í það verð bókunargjöld flugfélagsins og raunverð því nær 16 þúsund krónum sem lægsta mögulega fargjald aðra leið. En Wow Air rífur tugþúsundir af fólki fyrir töskudruslu og því má gera ráð fyrir að flug fram og aftur með eina tösku kosti að lágmarki um 50 þúsund krónur eða svo.

Sem er, sörpræs sörpræs, á pari við lægstu fargjöld Icelandair til New York og þar tvær töskur með í pakkanum! Engu að síður er aukin samkeppni ALLTAF gott mál 🙂