Fyrir kemur að fólk leitar til okkar um ráð til að komast á sem ódýrastan hátt í ljúfar og safaríkar ferðir. Svona til að gefa fólki hugmynd um hvað hægt er að gera viti fólk hvar á að leita birtum við hér æði ljúfa og um leið sérstaka ferð sem við settum saman fyrir tvenn hjón fyrir skömmu.

Tvær flottar og skemmtilegar borgir og glimrandi góð sigling í viðbót og samt komið út í plús
Þau langaði til Bandaríkjanna eða Kanada, skiptar skoðanir um hvort landið væri betra heimsóknar meðal fjórmenninganna, en þau langaði jafnframt mikið í „einhvers konar siglingu“ líka væri þess kostur. Þau voru alls óhrædd að valsa um erlendar borgir á eigin vegum.
Pakkinn sem við stungum upp á og fékk afar góðar undirtekir er svohljóðandi:
A) Flogið með Icelandair til Seattle í Bandaríkjunum í lok júlí. Á vef flugfélagsins fékkst flug aðra leiðina niður í rúmar 85 þúsund krónur eða 170 þúsund á par.
B) Gisting í Seattle í þrjá daga á hóteli þokkalega miðsvæðis. Fundum fínt þriggja stjörnu hótel á okkar eigin bókunarvef niður í tólf þúsund krónur per nótt eða samtals 36 þúsund á hjónakornin.
C) Þá er haldið beint niður á bryggju þar sem við tekur tíu daga sigling á góðu skemmtiferðaskipi sem rúntar með fólk sem leið liggur upp til Alaska þar sem gert er gott stopp á einum fimm mismunandi stöðum áður en haldið er til baka og komið til hafnar í Vancouver í Kanada þann 13. ágúst. Toppskip og topp skipafélag og gist í káetu með sjávarsýn, ókeypis netaðgangi og þjórfé gefið eftir. Siglingin á mann kostar 270 þúsund krónur eða samtals 540 þúsund á parið.
D) Í Vancouver er gist í tvær nætur á þriggja stjörnu hóteli sem fékkst á rúmar níu þúsund krónur per nótt á bókunarvef okkar. Samtals hótelkostnaður þar því 18 þúsund krónur.
E) Flug til baka til Íslands frá Vancouver þann 15. ágúst og verð á mann fyrir flugið rúmlega 73 þúsund krónur. 146 þúsund samtals fyrir það flug.
Heildarkostnaður per hjón í þessu tilfelli var 892 þúsund krónur. Þeim er finnst það dýr pakki hafa ekki kynnt sér verðlag á góðum sérferðum almennt að undanförnu. Þó ekki sé um hundrað prósenta sams konar pakka að ræða eru Bændaferðir að bjóða flug til Kanada og Alaskasiglingu þaðan aðeins síðar í ágústmánuði. Sú mun styttri eða tíu dagar alls en verðmiðinn að lágmarki 599 þúsund á mann eða tæplega 1.2 milljónir á parið.
Við erum því 300 þúsund krónum ódýrari en Bændaferðir þó okkar pakki sé lengri og líklega betri og við alls ekki með neina samninga við Icelandair eða skipafélög. Þó með þeim fyrirvara að íslenskur fararstjóri er í för með fólki hjá Bændaferðum.
Að frátöldum milljarðamæringnum Kristjáni Loftssyni, hvalara og láglaunagreiðanda, ættu flesta aðra að muna nokkuð um 300 þúsund krónur.







