Ein þeirra borga Þýskalands sem í boði verður í beinu flugi héðan þetta sumarið er Stuttgart en þangað eru reglulegar ferðir bæði með Wow Air og þýska lággjaldaflugfélaginu Germanwings. Flugfélögin nokkuð á parinu samkvæmt verðúttekt Fararheill.

Lítill munur á flugfargjöldum héðan til Stuttgart í sumar.

Lítill munur á flugfargjöldum héðan til Stuttgart í sumar.

Wow Air mun reyndar ekki hefja reglulegt flug sitt fyrr en í júlímánuði og aðeins til loka ágúst meðan þýska félagið byrjar í lok maí og býður flug fram í september.

En þá tvo mánuði sem samkeppni ríkir eru félögin nokkuð á pari samkvæmt verðúttekt Fararheill sem gerð var kl. 15 sunnudaginn 1. febrúar 2015. Þar leitað að lægsta verði á flugi báða mánuðina aðra leið með sköttum og gjöldum en engum farangri. Eins og sjá má er jafntefli niðurstaðan.