Risaflugfélagið Delta Air Lines er hætt við áætlunarflug til og frá Keflavík og Minneapolis að því er fram kom hjá RÚV. Óþarfi að gráta það mikið.

Bandaríska risaflugfélagið Delta hætt við flugleið númer tvö til Íslands.

Bandaríska risaflugfélagið Delta hætt við flugleið númer tvö til Íslands.

Lítill missir sökum þess að fargjöld þessa risa hingað til milli Keflavíkur og New York hafa miðast við fólk með peninga milli handanna. Í það minnsta sé mið tekið af þeim fargjöldum flugfélagsins gegnum tíðina sem hafa oftar en ekki verið vel yfir fargjöldum Icelandair á sömu leið. Og seint fer hið íslenska flugfélag í bækur fyrir lág fargjöld.

Delta er líka auðvitað ekkert að taka mið af íslenskum raunveruleika heldur fyrst og fremst verið að bjóða Kananum upp á meiri fjölbreytni.

Fínt mál í alla staði að þau flugfélög sem hér fá bestu afgreiðslutíma séu flugfélög sem landinn hér getur notað án þess að maxa yfirdráttarheimildina í hvert skipti.