H öfuðborg Bretlands er ekki allra. Sumir fara helst ekki annað meðan aðrir stíga þar helst ekki niður fæti. Hvaða skoðun sem fólk hefur á borginni þá er hún sannarlega ein af þeim borgum heims sem aldrei sofa. Hér má finna líf á öllum tímum sólarhringsins allan ársins hring.

Það sannar meðal annars myndbandið hér að neðan þar sem tekst glettilega vel að gera stórum hluta London skil á fjórum mínútum eða svo. Frábær kynning líka fyrir þá sem kannski hafa enn aldrei heimsótt borgina.