Svona bara ef hafi það farið framhjá einhverjum þá er jafn marg dásamlegt við veraldarvefinn og er slæmt.

Eitt kort sýnir þér hvar þú þarft sérstaka vegabréfsáritun. Frábært framtak

Eitt kort sýnir þér hvar þú þarft sérstaka vegabréfsáritun. Frábært framtak

Tökum til að mynda nýlegan vef sem kallast Visamapper sem sýnir þér á augabragði hvort þú þarft sérstaka vegabréfsáritun og þá hvort hana er hægt að fá á staðnum eða er þörf að sækja um það fyrirfram.

Mikil og góð einföldun á ferli sem oft tekur tíma ætli fólk í lengri ævintýraferðir um fleiri en eitt land.

Hafa skal þó í huga að Visamapper er nýlegt fyrirbæri og kannski ráð að taka upplýsingunum með salti svona til að byrja með. Fararheill hefur til dæmis rekist á nokkrar villur en almennt sýnist okkur vera að marka vefinn þann og uppfærslur eiga sér stað reglulega. Góð hugmynd að bera upplýsingar hér saman við upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu til að vera hundrað prósent 🙂

Visamapper hér.