G egnum tíðina hafa ófáar sögurnar gengið manna millum um Íslendinga sem rákust óvart á stórstjörnur í fríi sínu erlendis. Líklega er meirihluti þeirra eingöngu flökkusögurnar sívinsælu en sé raunverulegur áhuga að sjá eða rekast á stjörnu einhvers staðar ætti þessi listi að hjálpa upp á sakirnar.
Johnny Depp og fjölskylda dvelur löngum stundum í þægilegri villu í smábænum Plan de la Tour á suðurströnd Frakklands. Sjálfur segir Depp opinberlega fíla í tætlur að geta rölt á bæjarbarinn og fengið sér neðan í því án þess að vekja mikla eftirtekt og er þekktur fyrir að klæða sig í dulargervi til að fá frið.
Karl Lagerfeld tískugúrú dvelur regluega þar rétt hjá í lúxusbænum St. Trópez. Hann er reyndar öllu minna fyrir barinn og heldur meira útaf fyrir sig.
Jennifer Lopez á það til að trítla á ströndinni í Miami án þess að nokkur taki eftir enda dvelur hún helst þar í fríum. Sömu sögu er að segja um Matt Damon sem eyðir sínum frídögum helst í þeirri ágætu borg í strandhúsi sínu. Beckham fjölskyldan á hér villu og hyggst David Beckham eyða tíma sínum hér næstu árin samkvæmt nýjustu fregnum.
Isleworth er úthverfi í Orlando og þykir ekki sérstaklega merkilegt nema fyrir þá sök að kylfingurinn Tiger Woods og fyrrum körfuboltastjörnurnar Shaquille O´Neal og Vince Carter eiga þar sín önnur eða þriðju heimili.
Þá eiga þau Oprah Winfrey, Tina Turnar og George Clooney önnur heimili við Comó vatn á Ítalíu. Þau híbýli eiga þó meira skylt við kastala en heimili og álíka erfitt að komast þar inn.





