Dagatalið

Dagur krossins í Cordoba

  24/04/2009maí 11th, 2014No Comments

Það er engin leitun að stemmara í byrjun maí sé maður staddur í eða nálægt borginni Cordoba á Spáni.

Þá halda borgarbúar upp á Daga krossins, La Día de la Cruz, þar sem keppt er um hvaða gata getur útbúið fallegasta krossinn. Er því litrík upplifun að tölta þar um og njóta enda íbúar velflestir trúaðir og það þykir dapurt prógramm ef ekki er skreyttur kross á heimilinu þann daginn.

Cordóba á Spáni er þó fjarri lagi eini staðurinn sem stendur að slíkri hátíð. Í S.Ameríku halda fjölmargir borgir og bæir upp á sama viðburð en þó með mismunandi sniði.