H álfnaktir velvaxnir menn baðaðir olíu trekkja yfirleitt að hvar sem er í heiminum og Tyrkland er engin undantekning. Í bænum Edirne þar í landi fer fram í júní ár hvert tyrkneska olíuglíman sem svipar örlítið til íslensku glímunnar.
Þar takast á tyrknesk mikilmenni á öllum aldri undir beru lofti og ataðir olíu frá toppi til táar. Keppnir sem þessi hafa verið stundaðar í landinu frá aldaöðli og er fjölsótt af íbúum en Edirne þykir fremst jafningja.
Skammt er þó síðan viðburðurinn fór að vekja athygli utan landsteina Tyrklands og nú fer viðburðurinn fram á alvöru íþróttaleikvangi í borginni sem er í um þriggja klukkustunda fjarlægð frá Istanbúl.
Ekki er kannski ástæða til að gera sér sérstaka ferð útaf glímunni einni saman en Edirne er um margt falleg lítil borg og þar er fleira að sjá en glímukappa. Þá er hún fínt mótvægi við ysinn og þysinn sem einkennir lífið í Istanbúl.





