Tíðindi

Föstudagsvídeóið með rússnesku lagi

  23/11/2012No Comments

Flugfélög heimsins reyna ýmislegt til að skera sig úr frá öðrum. Eðlilega enda eru þau öll meira og minna að bjóða nákvæmlega sömu vöruna þegar allt kemur til alls.

Hvort allir Rússar eru svona miklir eftirbátar skal ósagt látið. En auglýsing rússneska flugfélagsins Avianova var bönnuð víða.

Sérstaklega eru lággjaldaflugfélögin framarlega í flokki þegar kemur að því að vekja á sér athygli á nýstárlegan hátt. Það vita þeir sem flogið hafa með Wow Air að þar byrjað stuðið um leið og hurðin lokast og brandarar og dirrindí taka við.

Margar vélar lággjaldaflugfélagsins Vueling eru ekki bara skreyttar að utan heldur að innan líka og hefur ritstjórn lent í einni vél þeirra með Saturday Night Live þema með tilheyrandi diskókeilum og tónlist.

En rússneska lággjaldaflugfélagið Avianova fer helst til mikið neðanbeltisleiðir til að vekja athygli samkvæmt auglýsingu þess flugfélags.

Sú er reyndar orðin tveggja ára gömul en fleiri nýlegra auglýsingar þess flugfélags hafa verið í svipuðum dúr þó kannski ekki jafn djarfar. Svo djörf þótti þessi auglýsing að neðan að yfirvöld í nokkrum löndum heims bönnuðu auglýsinguna. Sem vitaskuld vekur bara meiri athygli á uppátækinu.