Forráðamenn Wow Air hafa loks pungað út fyrir nýju léni en um hríð hefur gamla veffangið wowair.is sjálfkrafa breyst í wow.is.
Þetta breytir sjálfsagt litlu fyrir netnotendur en þetta auðveldar fólki og þá sérstaklega þeim er minna kunna fyrir sér á tölvur aðeins. Gamla veffangið er áfram virkt samhliða því nýja.
Wow.is hefur lengi tilheyrt sveitarfélaginu Hornafirði sem rak undir nafninu wow.is vef sinn Ríki Vatnajökuls. Væntanlega hefur sveitarfélagið ekki látið sitt gamla lén alveg ókeypis því ríkivatnajokuls.is er langt í frá eins þjált í vefheimum.
Flóknara verður líklega og dýrara fyrir Wow Air að verða sér úti um erlend vefföng á þessu nafni. Nett leit leiðir í ljós að veffangið wow.com, wow.no, wow.dk, wow.co.uk, wow.net og wow.biz eru frátekin.
Þá gæti Wow verið í vandræðum taki menn einn daginn upp á því að bjóða einhvers konar vildarklúbb. Þá gætu viðskiptavinir þeirra setið uppi með Wowkort.







