Sennilega eru ekki margir Frónbúar sem fljúga til Parísar í þeim tilgangi einum að gera úttekt á flugfélaginu sem farið er með. Það hins vegar gerir bloggarinn Jens Guð sem nýlega ákvað að prófa þjónustuna hjá Wow Air. Flugfélagið fær toppeinkunn hjá karlinum.

Flugþjónarnir um borð í vélum Wow Air þykja skemmtilegir og tilbreyting frá formlegheitum og gömlum hefðum
Sló flugferðin í gegn að hans mati og á hann vart orð yfir hversu gaman var um borð. Óhefðbundin þjónusta flugþjóna vakti lukku og allt stóð eins og stafur á bók.
Ég gef Wow hæstu einkunn. Frábærar flugfreyjur og sérlega fyndnar. 100% tímaáætlun. Frábær stemmning um borð. Galsi út í eitt. Góð tilbreyting frá formlegheitum og alvörugefnum upplýsingum. Það var góð skemmtun að fljúga með Wow. Tekið skal fram að ég þekki engan persónulega sem vinnur hjá Wow eða tengist því fyrirtæki.
Það er ekki síður mikilvægt að almenningur tjái sig um góða þjónustu hjá fyrirtækjum en slæma og ritstjórn tekur undir að hafa aðeins heyrt gott eitt um flug með fyrirtækinu. Blogg Jens í heild sinni hér.






