Það er góð regla þaulvanra ferðamanna sem yfir ár þurfa að komast að kanna með ítrustu varkárni dýpt og straumþunga áður en haldið er á fullu feti yfir. Kannski væri fráfarandi forstjóri Wow Air enn í starfi hefði hann haft þessa reglu bakvið eyra þegar hann hóf störf.

Skúli Mogensen tekur við sem forstjóri Wow Air og hyggst blása til frekari sóknar. Það er hið besta mál
Fjölmiðlar íslenskir nema Pressan, Eyjan og Mbl.is hafa í dag allir sem einn greint yfirborðskennt frá forstjóraskiptum hjá Wow Air. Þar hefur sest í stól forstjóra sjálfur aðaleigandinn Skúli Mogensen. Viðskiptafélagi Skúla til fjölmargra ára og forstjóri Wow til þessa, Baldur Oddur Baldursson, tekur pokann sinn og hverfur endanlega á braut.
Eingöngu Viðskiptablaðið gerir svo mikið sem ræða við nýja forstjórann og leita skýringa á brotthvarfi fyrri forstjóra sem náði aðeins rétt rúmu ári í starfi. Dauðaþögn þriggja ofangreindra miðla vekur athygli því allir greindu þeir töluvert frá forstjóraskiptum hjá Iceland Express á síðasta ári.
Skúli segir í samtali við Viðskiptablaðið að hann hafi klæjað í puttana að komast í bransann. Mikil stemmning fylgi því að taka þátt í daglegum rekstri og söknuður hafi verið eftir slíku. Ítrekar hann að enginn ágreiningur hafi verið um rekstur Wow Air við fráfarandi forstjóra. Þvert á móti sé reksturinn góður og Baldur Oddur hafi staðið sig vel.
Skúli er sleipur kúnni og mun eflaust efla rekstur Wow Air til muna með 500 milljóna króna hlutafjáraukningu auk þess sem hann er vinnuþjarkur mikill. En hann er varla að segja allan sannleikann varðandi reksturinn eða góð störf fráfarandi forstjóra.
Það segir sig nokkuð sjálft að hefði Baldur Oddur staðið sig svo vel sem Skúli vill meina hefði honum varla verið bolað úr starfi forstjóra eftir nokkra mánuði. Og hvað þá með þau orð að hlutfjáraukningin fari í að bæta aðbúnað og leiðakerfi félagsins eins og fram kemur á vef DV?
Fyrir utan þá staðreynd að Skúli er og hefur frá upphafi verið mikið með puttana í rekstrinum og undirbúningi öllum. Í viðbót við þetta lét Skúli hafa eftir sér í Fréttatímanum í sumar að hann hefði alla tíð búist við að fæðing Wow Air yrði erfið og hann væri undir það búinn að greiða með rekstrinum um nokkurra ára skeið. Síðast en ekki síst eiga hann og Baldur Oddur langa viðskiptasögu saman en Baldur hættir samstundis og gert að yfirgefa skútuna alfarið.
Fáum hefur dylst sem með fylgjast að fæðing Wow Air hefur verið enn erfiðari en stjórnendur áttu kannski von á þegar af stað var farið í október á síðasta ári. Ástæður þess að mati ritstjórnar Fararheill eru eftirtaldar:
- Harðari samkeppni. Þrátt fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar stjórnenda samkeppnisaðilans Iceland Express þess efnis að samkeppnin væri við Icelandair en ekki hið nýja Wow Air hafa þeir fyrrnefndu verið gríðarlega grimmir að mæta velflestum tilboðum Wow Air og reyndar breytt leiðakerfi sínu til að mæta samkeppni við Wow Air. Iceland Express hætti til dæmis að fljúga til Frankfurt í Þýskalandi með engum fyrirvara og færði sig yfir til Kölnar nokkrum sólarhringum eftir að ljóst varð að það yrði áfangastaður Wow Air.
- Tólf áfangastaðir strax frá upphafi hjá glænýju flugfélagi, og vitaskuld er Wow Air ekki flugfélag í eiginlegri merkingu, er helvíti vel í lagt. Of vel því félagið var allt of lítið til að sinna öllum tólf stöðum vel. Kapp er best með forsjá.
- Fábreytni í ferðamöguleikum. Af þessum tólf áfangastöðum sem í boði voru í upphafi var þegar samkeppni á flestum flugleiðunum frá Icelandair, Iceland Express eða erlendum flugfélögum. Íslendinga flesta dreymir um sól, sælu og feita strönd á sumrin og marga dreymir um að komast beint til Ítalíu, Grikklands, Tyrklands, Portúgal eða fleiri staða á Spáni en Alicante. En nei, Alicante var það heillin. Og hvar í heiminum eru Íslendingar af mörgum taldir gríðarlegir snillingar fyrir að sýna bankahrunsmönnum í tvo heimana? Jú, í Portúgal, Grikklandi og á Ítalíu og Spáni. Með öðrum orðum; það er fullt af fólki með peninga í þessum löndum sem heillast af Íslandi og langar. Sömu sögu er að segja af ferðum Wow ferða. Þar var fátt í boði sem ekki var í boði annars staðar.
- Áhersla á aukaatriði. Aðalhlutverk Wow Air í upphafi var að flytja fólk ódýrt og vel milli landa. Sem Wow Air gerði en eyddi á sama tíma verulegum peningum í innihaldsrýr glanstímarit, sérhannaðan fatnað og sælkeramat um borð í þokkabót við 2007 útgáfuna af útvöldum og rándýrum fararstjórum í stöku sérferðum. Þá græðir Wow Air ekkert á því að styrkja hjólreiðakeppni um hringveginn eða ljósmyndasamkeppni í Fréttablaðinu.
- Óheppni. Töluvert færri sýndu því áhuga að heimsækja London þetta sumarið en vonir stóðu til svo dæmi sé tekið og því þurfti nánast að gefa sæti þangað. Forvitnilegir staðir á lista Wow eins og Lyon í Frakklandi féllu milli stafs og bryggju þegar þurfti að herða mittisólina aðeins rúmum mánuði eftir að fyrsta vél Wow fór í loftið.
En þetta er bara skoðun ritstjórnar Fararheill og hvað vitum við….
Ritstjórn óskar Skúla velfarnaðar í starfi og ítrekar þá von að Wow Air sé komið til að vera. Það er öllum ferðaglöðum Íslendingum í hag að hér sé samkeppni í fluginu og svo sannarlega hefur Wow komið sterkt inn þar.






