F erðir til Denver í Colorado í Bandaríkjunum hafa notið nokkurra vinsælda eftir að þangað hófst beint flug héðan frá Íslandi.
En það er öllu meira um að vera í fylkinu en bara golf, verslun og skíði.
Hér er þrennt athyglisvert að bauka ef fólk finnur fyrir leiða á ferð sinni um Colorado.
♥ Loftbelgjaferð > Í héraðinu South Park, sem teiknimyndaþátturinn víðfrægi er nefndur eftir, er í boði að klifra upp í loftbelg og fljúga um loftið blá um tíma. Slíkar ferðir eru alltaf skemmtilegar og á stundum spennandi í þokkabót. Hér í fjallasölum Colorado er slík ferð extra óviðjafnanleg því fjallendi er þúsundfalt skemmtilegra úr lofti en flatlendi. Nafnið South Park nær yfir dalverpi hér um slóðir og er enginn eiginlegur bær sem ber það nafn. Svæðið er þó aðeins í tæplega hálftíma fjarlægð frá bænum Breckenridge þar sem samnefnt skíðasvæði nýtur vinsælda. Nánar hér.
♥ Risaeðlutúr > Óvíða er að finna fleiri heillega steingervinga risaeðla en í Colorado. Auðvitað jafnast það ekki á við bestu náttúrufræðisöfn þar sem heilu beinagrindurnar finnast í raunstærð en þó er merkilegt. Einna besti staðurinn til þess arna heitir eðlilega Dinosaur en þar finnst Dinosaur National Monument. Það er þjóðgarður þar sem einstaklega mikið af steingervingum hafa fundist og þar á meðal yfir 1500 af risaeðlum. Fjölmargt annað í boði á þessu svæði. Nánar hér.
♥ Gullgröftur > Þó Colorado sé í dag þekktast sem útivistarsvæði par exellens var svo ekki alltaf. Fylkið átti allt sitt undir námugröftri á sínum tíma og hingað flykktust gullgrafarar og olíuleitarmenn í tugþúsundum. Nokkrar gamlar námur eru opnar til skoðunar og líklegast merkilegust þeirra Argo gullnáman í Idaho Springs. Sú er önnur tveggja í landinu öllu sem opin er ferðafólki og eftir túr um námuna geta áhugasamir prófað að leita að málminum eftirsótta. Nánar hér.
Sjá Þrír góðir í Kolóradó á stærra korti





