Flughræðsla hrjáir ótrúlega marga einstaklinga og margir þeirra óttast fátt meira en mikla og viðvarandi ókyrrð í flugi. Enda er tiltölulega auðvelt fyrir áhugamenn að ímynda sér að vélar þoli takmarkað af veltu og vaggi.

Ókyrrð fer fyrir brjóst margra flugfarþega en allar nútímavélar þola slíkt mætavel. Mynd birdlikeimages
Fræðilega er ekkert útilokað í þeim efnum en að mikil ókyrrð grandi nútímalegri þotu hvers viðhald er í góðu lagi er afar langsótt. Þotur nútímans eru hannaðar og byggðar til að þola eins og hálfs sinnum meiri átök við veður og vinda en nokkuð sem mælt hefur verið síðustu 40 árin í fluginu og jafnvel mikil ókyrrð kemst hvergi nærri þeim mörkum.
Orsakir ókyrrðar eru tvíþættar. Annars vegar ókyrrð sem tengja má við storm eða vindasamt veður. Við þær kringumstæður þéttist vatnsgufa, myndar dropa og gefur um leið frá sér orku sem hitar loftið í kring. Þegar það loft rís upp þynnist það svo það rís enn ofar og hraðar. Það er þessi uppsúgur sem bylur svo hressilega á vélum í lofti. Slíku geta flugmenn með nútímatækni yfirleitt alltaf sniðið hjá vandræðalaust.
Hins vegar er um svokallaða heiðkviku að ræða eða clear air turbulence sem er verri enda ósýnileg og slíkt gerist yfirleitt á skýlausum himni. Heiðkvika myndast þar sem tveir loftmassar á mismunandi hraða eða úr mismunandi áttum mætast.
Ritstjórn hefur verið um borð í Airbus vél Qatar Airways yfir Pakistan þegar ókyrrð varð svo mikil að flugþjónn um borð slasaðist. Ekki aðeins var ókyrrðin mikil heldur og féll vélin skarpt í nokkur skipti þegar lent var í loftgötum. Þær sex mínútur sem ókyrrðin varði var flugstjórinn allan tímann í sambandi við farþega og sagði ókyrrðina slæma en aldrei alvarlegt vandamál.
Í öllu falli er afskaplega sjaldgæft að vélar þoli ekki veður og vinda á ferðum sínum og verður að leita áratugi aftur til að finna dæmi um flugslys sem rekja mátti til þess að vélin þoldi ekki álagið.
Kannski líður þeim betur sem fylgjast með meðfylgjandi myndbandi frá Boeing þar sem þol vængja 777 þotu þeirra var kannað. Er með hreinum ólíkindum hversu mikið álag vængirnir þola en sjón er sögu ríkari.






