Icelandair aflýsti í gær flugi frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur og tilkynnir á heimasíðu sinni um verulegar seinkanir véla félagsins í dag. Engar ástæður eru gefnar.
Sjá má á vef Icelandair að flugi frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur í gær 30. mars hafi verið aflýst og sett á í staðinn í dag laugardag. Sömuleiðis eru verulegar tafir á tveimur öðrum vélum Icelandair til og frá sömu borg.
Enginn veit sína ævina og alltaf getur eitthvað komið upp á stöku sinnum hjá flugfélögum sem ekki er hægt að ráða bót á í einum grænum. En er ekki lágmarkskurteisi að gefa upp ástæður?
UPPFÆRT:
Fararheill.is hefur fengið staðfest að um bilun var að ræða í einni vél Icelandair. Það aftur varð til þess að hartnær 20 klukkustunda töf varð á brottförum frá Kaupmannahöfn.







