Tíðindi

50 milljón ferðamenn til New York

  03/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Met var slegið í New York um síðustu áramót. Þá höfðu, samkvæmt tölum borgaryfirvalda, 50 milljón ferðamenn heimsótt borgina árið 2011.

Það er stórmerkilegur árangur þegar litið er til þess að borgin sú er mjög dýr heimsóknar.

Meðalkostnaður á hótelherbergi í borginni síðasta ár nam 38.301 krónu samkvæmt því er fram kemur í dagblaðinu Los Angeles Times. Þá fer og í taugar margra að þar er hvergi farið inn fyrir dyr án þess að sæta öryggisskoðun af einhverju taginu og þeim fækkar stöðunum þar sem ljósmyndun er heimil.

Engu að síður hefur ferðamannafjöldinn til borgarinnar aukist verulega og sækja nú fleiri New York heldur en Orlando og Los Angeles til samans. Stærsti hlutinn eru reyndar Bandaríkjamenn sjálfir en þó heimsækja hana líka 33 prósent allra erlendra ferðamanna sem til landsins koma.

Er þetta þó ekki tilviljun ein. Borgarstjórinn Bloomberg hefur lenig haft á stefnuskránni að fjölga ferðamönnum og 50 milljóna markið var einmitt sett af honum en fyrir árið 2014.

Til samanburðar var sett met á Íslandi líka. Hingað komu rúmlega 600 þúsund ferðamenn á síðasta ári.