Ungir athafnamenn sem reka gistiheimili í miðborg Reykjavíkur skoða nú þann möguleika að setja á stofn nýtt flugfélag samkvæmt því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.
Segir í viðtali við þá Hermann Fannar Valgarðsson og Valdimar Geir Halldórsson að þeir sjái fyrir flugfélag á svipuðum nótum og Virgin og Ryanair. Málið sé þó aðeins á byrjunarstigi en kostnaður við leigu og rekstur einnar einustu vélar er ekki undir 200 milljónum króna á ársgrundvelli.
Ritstjórn Fararheill.is fagnar öllum slíkum áformum enda samkeppni lítil í flugi hér á landi sem öðru. En spurningamerki verður að setja við ummælin um Virgin og Ryanair því þau flugfélög eru svart og hvítt og kannski ættu tvímenningarnir ekki að ana út í flugrekstur þekki þeir ekki muninn.
Ryanair er botninn á lágfargjaldaflugfélögum heimsins. Uppgefin verð vissulega afar heillandi en þau verð fær í raun enginn því ýmis aukagjöld er óhjákvæmilegt að losna við við bókun. Þá þykir þjónusta þess flugfélags með því allra versta og á stundum engin.
Virgin Airlines er allt annar handleggur. Það er ekki lágfargjaldaflugfélag heldur þvert á móti á félagið einna yngstu þotur heims og um borð í þeim öllum er fyrsta flokks þjónusta og stundum gott betur. Þó tekst Virgin oftar en ekki að bjóða mjög samkeppnishæf verð á lengri flugleiðum og flýgur ekki, ólíkt Ryanair, til flugvalla í órafjarlægð frá auglýstum áfangastöðum.






