Öfundsverðir eru grannar okkar til suðausturs að okkar mati. Írar geta næstu mánuðina komist rakleitt til Peking/Bejing í Kína frá Dyflinni fyrir okurprísinn 55 þúsund krónur eða svo. 27 þúsund krónur rúmar hvora leið. Það er magnað tilboð alla þessa leið.

Í Kína er gott að versla og spreða segir máltækið og sjaldan sem nú.
Íslenskir unnendur kínverskrar menningar gætu gert verri hluti en negla þetta flugið gegnum vef Skyscanner hér sökum þess að með Wow Air er algengt að komast til Dublin og heim aftur fyrir þetta sautján til átján þúsund krónur á haus.
Vissulega á ódýrasta farrými og ekkert innifalið hjá Wow Air en með því að slá þessar tvær flugur bíður dúllerí í Peking/Bejing fyrir 70 þúsund krónur alls per einstakling. Þetta ódýrari pakki en beint flug til Orlandó og ekki skemmir að kínverski gjaldmiðillinn hefur verið að taka dýfu á meðan bandaríski dollarinn hækkar jafnt og þétt. Það er því töluvert betra að versla í Kína þessi dægrin en vestanhafs.
Svona nú, út með þig 🙂







