Margir Íslendingar og ekki síst þeir sem komnir eru á efri ár, sjá Tæland töluvert í hillingum sem dvalarstað til lengri tíma. Þið vitið, fólkið sem er komið á aldur og hefur það sæmilegt en ekki alveg með peninga á bók til að kaupa íbúð í Torrevieja.

Sæmileg íbúð á vinsælum stöðum í Tælandi kostar nú 40 prósent meira en fyrir tíu árum síðan. Samt vel undir því sem gerist í Evrópu.

Fengum fyrirspurn frá innlendingi sem vildi vita hvort við hefðum hugmynd um hvað það kostaði að leigja íbúð á mismunandi stöðum í Tælandi til lengri tíma. Viðkomandi aldrei farið til Tælands en hafði alltaf áhuga og nú þegar ellilífeyrinn var farinn að tikka (og ekki duga fyrir ýkja mörgu á klakanum) vildi viðkomandi gjarnan kanna hvað annað væri í boði en að reyna að koma sér fyrir á ströndum Spánar til að láta ellilífeyrinn endast lengur en hér heima.

Okkur ljúft og skylt að svara.

Fyrst er frá að segja að Tæland allt er mun dýrara land heimsóknar nú en fyrir tíu árum síðan. Almennt leiguverð á íbúðum eða stærri fasteignum í landinu hefur hækkað um tæplega 40 prósent frá árinu 2008.

Ekki svo að skilja að neitt sé ýkja dýrt í Tælandi en sé fólk þarna úti að reyna að teygja á ellilífeyri eða örorkubótum eða öðru slíku er ráð að vita af því að Tæland er ekki lengur þetta hræbillega land sem það var aðeins fyrir áratug síðan. Billegt já, hræbillegt nei.

Því til sönnunar ætti að nægja að nefna að almennt leiguverð per mánuð í borgum landsins á eins herbergja íbúð er þegar þetta er skrifað um 55 þúsund krónur. Hafi fólk áhuga að búa í þorpum eða minni bæjum finnst eins herbergja íbúð almennt niður í 30 þúsund krónur per mánuð. Það er rösklega sama verð og fólk fær fyrir mánaðar gistingu á lélegri hótelum á vinsælum stöðum. Það er að segja eins til tveggja stjörnu hótela.

Plúsinn hins vegar sá að hækkunin er hlutfallslega lítil ef einhver vill leigja eitthvað stærra en stúdíóíbúð. Í Bangkok má oft finna góða þriggja herbergja íbúð per mánuð kringum 90 þúsund krónur í sæmilegu eða góðu hverfi. Að sama skapi kostar slík íbúð allt niður í 40 til 60 þúsund í smærri bæjum og þorpum.

Ekki dýrt á neinum skala miðað við Ísland, Evrópu eða Bandaríkin en svakaleg hækkun miðað við það sem var raunin hér aðeins fyrir tíu árum síðan. Þá fékkst auðveldlega þriggja herbergja fín íbúð á fínum stað í Bangkok í mánuð fyrir 60 þúsund per mánuð að meðaltali.

Engu að síður enn töluvert lægra en þú borgar per mánuð í Alicante, Torrevieja eða öðrum slíkum stöðum á Spáni. Og matur og skemmtun kostar ennþá djók.

PS: kíktu á hótelvef okkar hér að neðan. Sá fimmfaldur heimsmeistari á World Travel Awards og þar finnst líka langtímaleiga víða í borgum Asíu með duglegum afslætti.